Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des

Bíllausi dagurinn á föstudaginn

Nú stendur yfir evrópska samgönguvikan sem lýkur á föstudaginn með bíllausa deginum. Á bíllausa deginum eru öll hvött til að skilja bílinn eftir heima og nýta vistvæna samgöngumáta.

Brennur þú fyrir Betri Bakkafirði?

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, auglýsir eftir verkefnisstjóra verkefnisins „Betri Bakkafjörður“. Verkefnið er hluti af verkefnum „Brothættra byggða“ og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, SSNE og Langanesbyggðar. Um 100% starf er að ræða. Umsóknarfrestur er til mánudagsins 16. október kl. 12.00.

Finnst þér flókið að skrifa styrkumsókn?

SSNE býður upp á fría ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja vegna styrkumsóknarskrifa en nú bætum við um betur og bjóðum upp á styrki til að sækja sérhæfða ráðgjöf eða námskeið í styrkumsóknarskrifum. Markmiðið er annars vegar að fjölga umsóknum af svæðinu og hins vegar að hækka árangurshlutfall umsókna af svæðinu.

Viðvera í tengslum við Uppbyggingarsjóð

Ráðgjafar SSNE verða á ferð um Norðurland eystra á næstu dögum og verða með viðveru á tólf stöðum til að veita ráðgjöf varðandi umsóknarskrif í Uppbyggingarsjóð.
Mynd: Jennifer Franklin

Heimskautsgerðið á vef NASA

Stjörnuáhugafólk um allan heim sem opnar vef NASA í dag ætti ekki að verða fyrir vonbrigðum með mynd dagsins.
Mynd/KÞH og HH, Byggðastofnun

Fjölbreytt verkefni í Betri Bakkafirði

Þrátt fyrir smæð samfélagsins á Bakkafirði og nærsveitum er óhætt að segja að ekki skorti á frumkvöðlahugsun og kjark til að hrinda verkefnum í framkvæmd og þá gjarnan með stuðningi Frumkvæðissjóðs Betri Bakkafjarðar.
Mynd: Markaðsstofa Norðurlands

Bókun stjórnar vegna Húsavíkurflugs

Stjórn SSNE hefur bókað vegna Húsavíkurflugs.

Application Workshop for Northeast Iceland Development Fund

The Northeast Development fund is now open for applications. The application deadline is in the 18th of October at 12:00.

Námskeið fyrir græna leiðtoga sveitarfélaga SSNE

Sveitarfélögum býðst að senda græna leiðtoga sína á námskeið til dr. Snjólaugar Ólafsdóttur þann 22. september næstkomandi. Snjólaug Ólafsdóttir er sviðstjóri sjálfbærni hjá EY og hefur komið víða við á sviði sjálfbærni. M.a. hefur hún unnið mikið með Festu - miðstöð um sjálfbærni og aðstoðað við gerð og innleiðingu sjálfbærni- og loftslagsstefnu hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum. Sveitarfélög SSNE geta sent fulltrúa á námskeiðið sér að kostnaðarlausu, en námið er liður í að byggja upp þekkingu á umhverfis- og loftslagsmálum innan hvers sveitarfélags. Námskeið er einnig hluti af LOFTUM sem er áhersluverkefni landshlutans á árinu 2023 og styrkt af Sóknaráætlun. Tengiliðir Grænna skrefa SSNE eru boðnir sérlega velkomnir á námskeiðið, en annað starfsfólk að sjálfsögðu velkomið.

Skrifstofa Norðurþings á Raufarhöfn innleiðir fyrsta Græna skref SSNE

Skrifstofa Norðurþings á Raufarhöfn er fyrsta starfsstöðin til að innleiða fyrsta Græna skref SSNE. Starfsstöðin er smá en rúmar viðamikla starfsemi þar sem Orkuveita Húsavíkur, Landsbankinn, Pósturinn og Þjóðskjalasafnið halda úti starfsemi þar, auk Norðurþings.
Getum við bætt síðuna?