Í dag, þriðjudaginn 31. október, lenti fyrsta flugvél breska flugfélagsins easyJet á Akureyrarflugvelli, en félagið mun halda úti áætlunarflugi á milli London og Akureyrar út mars 2024.
Straumhvörf er nýtt vöruþróunarverkefni í ferðaþjónustu sem nær yfir allt Norður- og Austurland og er ætlað fyrirtækjum í ferðaþjónustu og fulltrúum sveitarfélaga.
SSNE stendur fyrir kynningarfundi fyrir íbúa Hörgársveitar fimmtudaginn 2. nóvember í íþróttamiðstöðinni á Þelamörk. Á fundinum verða hugmyndir um uppbyggingu líforkuvers á Dysnesi kynntar og íbúar Hörgársveitar eru hvattir til að mæta. Fundurinn fer fram í sal íþróttamiðstöðvarinnar á efri hæð og boðið verður upp á kaffi.
Vikuna 16. - 20. október var farin kynnisferð til Finnlands og Noregs þar sem hag- og fagaðilum var boðið að kynna sér starfsemi líforkuvera í báðum löndum. Ferðin var skipulögð af verkefnastjóra SSNE, Kristínu Helgu Schiöth, og ráðgjafanum Karli Karlssyni sem hefur verið SSNE innan handar í undirbúningi líforkuvers á Dysnesi.
Á síðasta ári unnu Þekkingarnet Þingeyinga og SÍMEY – Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar fræðslugreiningu þar sem starfsfólk og kjörnir fulltrúar sveitarfélaga á Norðurlandi eystra voru beðin um að leggja mat á eigin fræðsluþörf í málefnum sem tengjast loftslags- og umhverfismálum í sambandi við sín störf. Að því loknu var farið í að vinna fræðsluáætlun í samræmi við niðurstöður.
Þann 5. október síðastliðinn var haldið velheppnað málþing um byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir. Á málþinginu var farið yfir það sem hefur heppnast vel og það sem hefur lærst á þessum rúma áratug sem verkefnið hefur verið í gangi. Að auki voru kynntar niðurstöður áhrifamats á verkefninu sem unnið var af KPMG. Nanna Steina Höskuldsdóttir verkefnastjóri SSNE og Norðurþings á Raufarhöfn stýrði dagskránni en hún var áður verkefnastjóri brothættra byggða verkefnisins Raufarhöfn og framtíðin.
Umsóknarfrestur fyrir Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra rann út 18. október, en alls bárust 123 umsóknir, þar af voru 70 menningarverkefni, 43 atvinnu- og nýsköpunarverkefni og 10 stofn og rekstrarstyrkir menningarstofnana.
Í dag var haldið haustþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, en þingið var rafrænt. Ásamt hefðbundnum þingstörfum var kynnt tillaga að Samgönguáætlun Norðurlands eystra 2023-2033.