Drög að fyrstu borgarstefnu fyrir Ísland hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Með borgarstefnu er markmiðið að styðja við þróun borgarsvæða sem drifkraft velsældar, fjölbreyttari búsetukosta og aukinnar samkeppnishæfni landsins.
Föstudaginn 9. febrúar hélt SSNE vel heppnað málþing með yfirskriftinni Út um borg og bý, þar sem meðal annars var reynt að svara spurningunni, Hverju skilar samstarf nágranna og hvað prýðir gott sveitarfélag?
Grænum skrefum SSNE er sífellt að fjölga og Amtsbókasafnið á Akureyri tók við viðurkenningu fyrir að hafa stigið sitt fyrsta græna skref af fimm í síðustu viku.
,,List fyrir alla" auglýsir nú eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á svið barnamenningar fyrir grunnskólabörn. Starfandi listafólk sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 17. mars 2024.
Starfar þú í mötuneyti hjá sveitarfélagi á starfssvæði SSNE? Hefur þú gaman af því að hugsa út fyrir boxið? Er sveitarfélagið þitt þátttakandi í Grænum skrefum SSNE? Langar þig að bæta við þig þekkingu um kolefnisspor matvæla og sjálfbærni í mötuneytum? Þá er námskeiðið Hamfarahlýnun í hádegismatinn fyrir þig!
Á síðasta stjórnarfundir SSNE var samþykkt janfréttisstefna SSNE, en tilgangur og markmið hennar er að stuðla að jafnri stöðu og tækifærum alls starfsfólks SSNE óháð kynhneigð, kyni, þjóðerni, kynþætti, litarhætti, stjórnmálaskoðunum og trú, eða öðrum slíkum persónubundnum atriðum.
Hverju skilar samstarf nágranna og hvað prýðir gott sveitarfélag?
Svörin við þeirri spurningu verða rædd undir þemunum þremur: Húsaþyrping eða samfélag?, Samstarf sveitarfélaga og Borgarstefna
á málþinginu Út um borg og bý sem fram fer í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á morgun föstudaginn 9. febrúar. Jafnframt verður hægt að fylgjast með í streymi og taka þátt í gegnum teams.
Góð þátttaka var á kynningarfundi um breskan markað sem var lokahnykkurinn af verkefninu Straumhvörf, sem snýst um vöruþróun í ferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi.