Kynningarfundur fyrir íbúa Hörgársveitar fimmtudaginn 2. nóvember
Kynningarfundur fyrir íbúa Hörgársveitar fimmtudaginn 2. nóvember
SSNE stendur fyrir kynningarfundi fyrir íbúa Hörgársveitar fimmtudaginn 2. nóvember í íþróttamiðstöðinni á Þelamörk.
Á fundinum verða hugmyndir um uppbyggingu líforkuvers á Dysnesi kynntar og íbúar Hörgársveitar eru hvattir til að mæta. Fundurinn fer fram í sal íþróttamiðstöðvarinnar á efri hæð og boðið verður upp á kaffi.
Eftir kynningar gefst færi á umræðum og spurningum úr sal.