SSNE auglýsir eftir verkefnisstjóra í afmarkað og tímabundið verkefni. Verkefnið sem um ræðir er styrkt af A.10. Almenningssamgöngur um land allt úr Byggðaáætlun 2018-2024.
Verkefnið ber heitið Samfélagsleg nýsköpun- Samlegð farþega- og póstflutninga á Norðurlandi.
Verkefnið felst í að tengja saman hagaðila og setja upp rekstrarhæft viðskiptamódel ásamt því að setja upp leiðatöflu sem tekur til allra þátta s.s. þjónustu við íbúa, póstþjónustu og ferðaþjónustu. Svæðið sem um ræðir er frá Húsavík til Þórshafnar.