Ályktun um aðgengi að raforku
Ályktunum aukaþings SSNE
Haldið í Laugarborg, Eyjafjarðarsveit 23. september 2022
Ályktun um aðgengi að raforku
Aukaþing SSNE haldið í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit 23. september 2023 leggur áherslu á að öll sveitarfélög landsfjórðungsins eigi kost á eðlilegum þróunarmöguleikum til uppbyggingar hvað varðar aðgengi að raforku. Sérstakt áhyggjuefni er nú hinir takmörkuðu möguleikar sem Langanesbyggð stendur frammi fyrir vegna þeirrar óásættanlegu raforkutengingar sem sveitarfélagið býr við. Aukaþing SSNE skorar á ráðherra orkumála að beita sér fyrir úrbótum á þessu í samvinnu við raforkuflutningsfyrirtæki, s.s. RARIK og Landsnet, þannig að atvinnulíf og íbúar alls landsfjórðungsins geti tekið fullan þátt í orkuskiptum.
27.09.2022