Tónlistarstyrkir sem veittir eru úr deild frumsköpunar og útgáfu eru styrkir til að
- semja tónlist,
- taka hana upp,
- gefa út
- og kynna.
Þetta eru styrkir á bilinu 500.000 kr - 3.000.000 kr og eru til hvers kyns frumsköpunar á tónlist, útgáfu og tengdrar markaðssetningar. Hljóðritun, útgáfa, tónsmíðar og lagasmíðar heyra hér undir. Markmið styrkjanna er að stuðla að fagmennsku, nýliðun og fjölbreytni í tónlist og þar með efla tónlistarlíf hér á landi. Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 föstudaginn 1. nóvember.
Úthlutunarnefnd metur út frá markmiðum og áherslum, hér má finna nánari upplýsingar um mælikvarða.
Hér má finna allar nánari upplýsingar um styrkjaflokkinn og hlekk á umsóknargáttina.
Allar fyrirspurnir varðandi tónlistarsjóð → styrkir@icelandmusic.is og svo er kannski búið að spyrja og svara hér því sama og þú ert að velta fyrir þér.
Auk þess sem leita má ráðgjafar hjá starfsfólki SSNE varðandi umsóknarskrif.
Þann 1. nóvember kl. 15:00 eru jafnframt umsóknarfrestir Tónlistarsjóðs úr eftirfarandi deildum:
- Flytjendastyrkir úr deild lifandi flutnings
- Viðskiptastyrkir úr deild þróunar og innviða
- Markaðsstyrki úr deild útflutnings
Auk þess er umsóknarfrestur um ferðastyrki úr deild útflutnings 30. nóvember.
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist samkvæmt Tónlistarlögum og reglum um Tónlistarsjóð.
Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þeirra hér á landi sem erlendis. Tónlistarsjóður heyrir undir menningar- og viðskiptaráðuneytið og er í umsýslu Tónlistarmiðstöðvar.