Fara í efni
Umsóknarfrestur: Þróunarverkefni búgreina

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina er til 15. mars 2024. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári.

Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.

Í sauðfjárrækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.

Í garðyrkju eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska garðyrkju og falla undir ráðgjafaverkefni, kynningaverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni, verkefni sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og endurmenntunarverkefni.

Umsóknir berist í gegnum Afurð, stafrænu stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins.

Umsóknarfrestur: Þróunarverkefni búgreina