Fara í efni
Umsóknarfrestur: Tækniþróunarsjóður - Markaður

Fyrir hverja?
Markaðsstyrkur er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af veltunni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.

Til hvers?
Markaður er markaðsstyrkur til fyrirtækja sem skiptist í tvo ólíka flokka: Markaðsþróun og Markaðssókn. Þessum flokkum er ætlað að styðja við fyrirtæki á mismunandi stigum í undirbúningi afurðar á markað.

Nánari lýsing á styrktarflokkunum má finna í reglum sjóðsins

Hámarksstyrkur: Styrkur getur numið allt að 10 m.kr.
Mótframlag: Að lágmarki 50% af heildarkostnaði við verkefnið.
Hámarks lengd verkefnis: 1 ár

Skil á umsókn: Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 á lokadegi umsóknarfrests. Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís. 

Sjá nánar með því að smella hér á vefsíðu sjóðsins. Athygli er vakin á því að starfsfólk Tækniþróunarsjóðs veitir upplýsingar og ráðgjöf er snúa að sjóðnum.

Finnst þér flókið að skrifa styrkumsókn? Smelltu hér ef þú vilt aðstoð.

Umsóknarfrestur: Tækniþróunarsjóður - Markaður