Matvælaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um tækjastyrk í lífrænum landbúnaði.
Stuðningur er veittur til kaupa á sérhæfðum búnaði sem stuðlar að aukinni framlegð í lífrænum landbúnaði og/eða bættri nýtingu lífræns áburðar. Hægt er að sækja um styrki fyrir kaupum á tækjum á borð við sem róbóta, niðurfellingarbúnað til áburðardreifingar, tæki til safnhaugagerðar, tækni fyrir nákvæmnislandbúnað, illgresishreinsa og öðrum tækjum sem uppfylla framangreind markmið.
Verkefnið er tímabundið og eru alls 30 milljónir króna til ráðstöfunar.
Umsækjendur þurfa að vera með gilda lífræna vottun í landbúnaði og uppfylla almenn skilyrði fyrir landbúnaðarstyrkjum sbr. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað. Sækja má um í Afurð til miðnættis 10. febrúar nk.
Með umsókn þarf að fylgja:
- Nafn, kennitala og lögheimili framleiðanda sem sækir um stuðning
- Búsnúmer lögbýlis.
- Lýsing á búrekstri, þar með talið upplýsingar um gripafjölda eftir tegundum búfjár, flatarmál lands eftir tegund nytja og aðstæður í gripahúsum.
- Kaupverð þeirra tækja sem umsókn varðar.
- Upplýsingar um áður fenginn aðlögunarstuðning ef við á.
- Samantekt um hvernig umrædd tæki sem sótt er um styrk fyrir stuðla að aukinni framlegð í lífrænum landbúnaði og/eða bættri nýtingu lífræns áburðar.
- Staðfesting á lífrænni vottun frá faggiltri vottunarstofu.
Nánari upplýsingar um forgangsröðun, afgreiðslu og mat á umsóknum má nálgast í reglugerð nr. 1226/2024 um breytingu á reglugerð um almennan stuðning við landbúnað.