Viltu hrinda góðri hugmynd í framkvæmd innan þíns fyrirtækis og vantar fjármagn?
Umsóknarfrestur um lán með lánatryggingu er til 15.mars 2022.
Búið er að opna fyrir umsóknir í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna sem er nú að hefja sitt þriðja starfstímabil.
Svanni veitir lán til fyrirtækja í eigu konu/kvenna og er hámarkslán 10 milljónir en sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann, er veitir lánin.
Sjóðurinn veitir lán með lánatryggingum til fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna og er hann liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi. Samkvæmt samþykktum sjóðsins eru hlutverk hans m.a. að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki, að auka aðgengi kvenna að fjármagni, að fjölga störfum og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Sjóðurinn er í eigu forsætisráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis og Reykjavíkurborgar.
Skoða má nánari upplýsingar um lánareglur og lánskjör hér á hlekkjum til vinstri.
Fjölmörg spennandi fyrirtæki hafa fengið fyrirgreiðslu hjá sjóðnum á undanförnum árum og er ljóst að þörfin á sjóði sem slíkum er mikil.
Hægt er að sækja um lán tvisvar á ári og er næsti umsóknarfrestur til og með 15.mars 2022.
Nánari upplýsingar er að finna hér.
Smelltu hér til að sækja um