Fara í efni
Umsóknarfrestur: styrkir til atvinnumála kvenna

Styrkjum til atvinnumála kvenna er úthlutað einu sinni á ári en þeir eru ætlaðir konum sem eru að vinna að viðskiptahugmynd eða þróun verkefnis. Markmiðið er að auka aðgengi frumkvöðlakvenna að fjármagni. Opið er fyrir til 14. mars 2025. Umsækjendur sem ekki hafa íslensku að móðurmáli, geta skilað inn umsóknum á ensku. Here you can find information in English.

Hvað er hægt að sækja um:

Forsendur/styrkhæfi:

  • Styrkhæf verkefni skulu vera í meirihlutaeigu kvenna (a.m.k. 51%) og stjórnað af konum.
  • Verkefnið skal fela í sér atvinnusköpun á Íslandi til frambúðar.
  • Um nýnæmi skal vera að ræða, annaðhvort nýja vöru/þjónustu eða þróun vöru/þjónustu.
  • Kröfur eru um að verkefnið skekki ekki samkeppnisstöðu á þeim markaði sem varan eða þjónustan er á.
  • Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. byggingakostnaðar, rekstrarstyrkir né styrkir til framleiðslu.
  • Styrkirnir eru ekki ætlaðir opinberum félögum eða félagasamtökum.
  • Ekki eru veittir styrkir til tímabundinna verkefna svo sem bókaútgáfu, tónleika eða annara stakra verkefna.
  • Sjá nánari upplýsingar hér.

Upphæðir:

  • Hámarksstyrkur er kr. 4.000.000.
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), áætlanagerðar, þróunarkostnaðar og markaðssetningar – sjá nánar í umsóknareyðublaði.
  • Athugið að aðeins er hægt er að sækja um styrk vegna helmings af kostnaði verkefnis og þvi þarf að sýna fram á eigið mótframlag í umsókn.
    • Leyfilegt er að telja 25% af heildarkostnaði sem framlag styrkhafa en útlagður kostnaður á að nema amk 75% af heildarkostnaði verkefnis.
    • Dæmi: Veittum styrk, sem er kr. 500.000 að upphæð, þarf að fylgja kostnaðaryfirlit upp að lágmarki 1.000.000.
    • Undantekning: Ef fyrirtæki er nýstofnað en ekki komið í rekstur og liggi fyrir trúverðug viðskiptaáætlun fyrir og viðkomandi að hefja rekstur er hægt er að sækja um styrk til að hrinda hugmynd í framkvæmd (launastyrkur fyrir viðkomandi styrkþega) Styrk má greiða í áföngum gegn skilum áfangaskýrslu og þarf að sýna fram á launaseðla þegar lokaskýrslu er skilað. Skilyrði er að viðskiptaáætlun fylgi með í viðhengi. Ekki gilda þá reglur um að helmingur kostnaðar sé styrktur.

Stigagjöf/líkur á styrk:

Til að auka líkur á því að verkefnið hljóti styrk, er mikilvægt að skoða bæði forsendur/styrkhæfi sem og matskvarðann sem nefndin notar í því erfiða verkefni að velja þær umsóknir sem hljóta styrk eða ekki. Hjá atvinnumálum kvenna eru horft til fimm þátta í stigagjöfinni og er vægi þeirra eftirfarandi:

  • Nýnæmi 25%
  • Samkeppni 12,5%
  • Möguleg framþróun 12,5%
  • Lýsing á viðskiptahugmynd 25%
  • Áætlanagerð (fjármögnun, kostnaðaráætlun og verkáætlun) 25%
  • Hér má finna matskvarðann

Umsóknarformið:

  • Athygli er vakin á því að aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum umsóknarkerfið á heimasíðu sjóðsins. Umsóknir sem berast í tölvupósti eru því ógildar.
  • Ef sótt er um gerð viðskiptaáætlunar þarf eingöngu að fylla út lýsingu á viðskiptahugmynd, markmið og nýnæmi. Ennfremur þarf ekki að skila yfirliti yfir kostnað vegna þeirra né gildir reglan um helmings mótframlag. Fylla skal út sérstaka umsókn ef sótt er um gerð viðskiptaáætlunar.
  • Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir innan 8 vikna eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Fyrirspurnir og ráðgjöf:

  • Hér má finna svör við algengum spurningum: Spurt og svarað
  • Ef frekari spurningar vakna, hafið þá endilega samband með því að senda póst á atvinnumalkvenna(hjá)atvinnumalkvenna.is eða pantið ráðgjafaviðtal hjá Atvinnumálum Kvenna hér.
  • Jafnframt er velkomið að leita til ráðgjafa SSNE varðandi umsóknarskrif og hugmyndaþróun.

Formálinn:

Styrkirnir eru veittir af félags- og barnamálaráðherra en Vinnumálastofnun sér um umsýslu þeirra. Á síðustu árum hefur verið úthlutað um 40 milljónum í fjölbreytt verkefni víðsvegar um landið. Styrkirnir hafa oft skipt sköpum fyrir verkefnin en einnig eru þeir mikil hvatning þeim sem að eru að stíga sín fyrstu skref í viðskiptum. Einnig er vísað í lög um jafna stöðu karla og kvenna en þar eru sértækar aðgerðir til að jafna stöðu karla og kvenna heimilaðar, sjá hér https://www.althingi.is/altext/stjt/2020.150.html

Atvinnumál kvenna á samfélagsmiðlum:

Umsóknarfrestur: styrkir til atvinnumála kvenna