Umsóknarfrestur: Rekstrarstyrkur félagasamtaka á sviði umhverfismála
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til rekstrar félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfismála. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til og með 10. febrúar 2025. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfis- og auðlindamál og að efla almenna vitund um gildi umhverfismála.
Umsækjendur rekstrarstyrkja ráðuneytisins þurfa að uppfylla skilyrði sem fram koma í reglum um almenna rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum. M.a. þurfa samtökin að
- hafa umhverfismál sem eitt af meginmarkmiðum félagsins skv. samþykktum þess,
- vera opin fyrir almennri aðild einstaklinga eða félagasamtaka (sé um regnhlífarsamtök að ræða),
- þau skulu ekki starfa í hagnaðarskyni,
- hafa að lágmarki 30 félaga,
- hafa opið og endurskoðað reikningshald og taka saman ársskýrslur.
- Þá er í reglunum sett fram viðmið, m.a. varðandi þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um umhverfismál og miðlun þeirra, sem höfð eru til hliðsjónar við úthlutun styrkjanna.
- Umsækjendur sem hlutu rekstrarstyrk fyrir árið 2024 skulu skila yfirliti yfir ráðstöfun styrksins með umsókninni.
Sótt um á eyðublaðavef Stjórnarráðsins
- Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
- Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Umsækjendur skrá sig inn og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
- Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilamála samkvæmt meðfylgjandi reglum verða ekki teknar til umfjöllunar.
- Nánari upplýsingar eru veittar í síma 545 8600 eða í tölvupósti á netfangið urn@urn.is