Myndlistarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir fyrir vorúthlutun árið 2025.
Umsóknarfrestur er til kl. 16 mánudaginn 24. febrúar.
Hlutverk myndlistarsjóðs er að veita styrki til undirbúnings verkefna og til að auðvelda framkvæmd verkefna á sviði listsköpunar og rannsókna á myndlist. Styrkir eru veittir til myndlistarfólks, sýningarstjóra, listfræðinga og sjálfstætt starfandi fagfólks á sviði myndlistar.
Undirbúningur umsókna:
- Umsækendur eru hvattir til að kynna sér matsferli og matskvaða.
- Boðið verður upp á vinnustofur fyrir umsóknagerð dagana 3.-7. febrúar.
Upplýsingar um tímasetningar og skráning fer fram hér. - Hafi umsækjandi hlotið styrk úr sjóðnum áður, þarf að skila greinargerð til að ný umsókn verði tekinn til umfjöllunar.
- Vinsamlega athugið að myndlistarsjóður styrkir vinnu sérfræðinga, laun tæknimanna, efniskostnað, tækjakostnað, vef- og fjölmiðlakynningu, skráningu og ljósmyndatöku, hönnun og umbrot, prentkostnað og annað sem tengist verkefninu. Sjóðurinn styrkir ekki ferðalög, þóknun til listamanna, rekstur vinnustofu eða veitingar í tengslum við viðburði.
-
Í þeim tilvikum sem sótt er um styrk vegna sýningaraða eða samsýninga eru skipuleggjendur hvattir til þess að senda inn eina umsókn fyrir verkefninu í heild, í stað umsókna frá einstökum sýnendum. Ef þátttakendur velja að senda inn umsóknir fyrir sínu framlagi, þá er mælst til þess að ekki sé send inn umsókn vegna verkefnisins í heild.
Myndlistarsjóður veitir þrjár tegundir styrkja:
Samkvæmt úthlutunarstefnu myndlistarráðs hafa eftirfarandi verkefni forgang:
- verkefni sem efla alþjóðlegt samstarf og kynningu á íslenskri myndlist erlendis.
- fjölbreytt verkefni á sviði myndlistar, m.a. með tilliti til sjálfbærni og menningarlegrar fjölbreytni.
- verkefni sem unnin eru í tengslum við myndlistarhátíðir og vinnustofur hérlendis og erlendis.
- verkefni sem byggja á samstarfi um rannsóknir og útgáfu rita og bóka um myndlist.
- verkefni sem styðja við framkvæmd myndlistarstefnu og þær aðgerðir sem falla undir starfssvið myndlistarráðs.
Upphæðir:
- Til úthlutunar eru 38 milljónir og tilkynnt verður um niðurstöðu í byrjun apríl.
- Lágmarksupphæð styrkja er 300.000 kr. og hámarksupphæð er 3.000.000 kr.
- Myndlistarsjóður styrkir allt að 70% af áætluðum heildarkostnaði verkefna.
Umsóknareyðublaðið:
- Umsóknareyðublað má nálgast hér
- Vistaðar eða innsendar umsóknir eru aðgengilegar hér
- Sýniseintak af umsóknarforminu má skoða hér
- Í umsókn er beðið um eftirfarandi:
- upplýsingar um umsækjanda og þátttakendur
- ferilskrá
- mynd sem má nota í kynningartilgangi
- verkefnalýsingu
- verkáætlun
- kostnaðaráætlun og fjármögnun verkefnis
- Umsóknir skulu vera á íslensku sé þess kostur, en annars má finna umsóknarform á ensku.
Gagnlegir hlekkir:
- Vefsíða myndlistarsjóðs: www.myndlistarsjodur.is
- Reglur myndlistarsjóðs
- Úthlutunarstefna myndlistarsjóðs 2022-2025
- Myndlistarlög
Hafa samband:
- Ef upp koma fyrirspurnir varðandi umsóknarferlið, vinsamlegast sendið tölvupóst á info@myndlistarsjodur.is
- Ráðgjafar SSNE veita ráðgjöf varðandi hugmyndaþróun og styrkumsóknagerð, sjá yfirlit yfir starfsfólk og starfsstöðvar hér. Boðið er upp á stað- og fjarfundi.