Umsóknarfrestur er 17. mars 2025, kl 15:00. Gott er að kynna sér fyrri úthlutanir til að fá hugmyndir, sjá t.d. hér verkefni sem hlutu styrk 2024
Hverjir geta sótt um?
Öll bókasöfn sem falla undir bókasafnalög geta sótt um styrki, ein eða með öðrum bókasöfnum eða með öðrum aðilum sem hafa það að markmiði að efla bókasöfn í landinu.
Hvert er markmið?
Hlutverk bókasafnasjóðs er að efla starfsemi bókasafna. Sjóðurinn styrkir skilgreindar rannsóknir og þróunar- og samstarfsverkefni á sviði bókasafna- og upplýsingamála. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja önnur verkefni til að efla faglegt samstarf bókasafna innanlands og utan.
Áhersla 2025
Við úthlutun styrkja árið 2025 njóta forgangs umsóknir sem tengjast markmiðum bókasafnalaga (6.gr) um að efla lestraráhuga og upplýsingalæsi.
Hvað er styrkt?
Styrkir Bókasafnasjóðs skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til eins árs. Sjóðurinn veitir ekki styrki til rekstrar og umsýslu bókasafna, né til verkefna sem þegar hafa átt sér stað. Bókasafnaráð metur umsóknir og notast við sérstakan matskvarða bókasafnasjóðs . Upphæðir og og fjöldi styrkja ráðast af ráðstöfunarfé sjóðsins, fjölda umsókna og gæðum þeirra.
Skilyrði úthlutunar
Umsóknum skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Styrkir úr Bókasafnasjóði eru veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki til verkefna sem taka lengri tíma en eitt ár.
Hafi umsækjandi þegið styrk úr Bókasafnasjóði áður þarf að liggja fyrir loka- eða áfangaskýrsla um framkvæmd fyrra verkefnis til að ný umsókn komi til greina.
Hlutverk Rannís
Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvar Íslands, Rannís, er að sjá um umsýslu bókasafnasjóðs fyrir hönd menningar- og viðskiptaráðuneytisins.
Ráðgjöf:
Tekið er á móti fyrirspurnum á bokasafnasjodur(hja)rannis.is og starfsfólk SSNE veitir jafnframt aðstoð við umsóknarskrif.