Umsóknarfrestur: Samfélagssjóður Landsvirkjunar
Sjóðurinn styður verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og leggur sérstaka áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif á nærsamfélög fyrirtækisins. Tekið er á móti umsóknum allt árið en úthlutað er úr sjóðnum þrisvar á ári. Umsóknarfrestur er til 31. mars, 31. júlí og 30. nóvember ár hvert.
Samfélagssjóður úthlutar að hámarki 12 milljónum króna í þremur úthlutunum. Að jafnaði eru styrkir á bilinu 100 til 500 þúsund og aldrei hærri en ein milljón króna.
- Styrkir eru veittir einstaklingum, hópum, sjálfseignarstofnunum og frjálsum félagasamtökum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni
- Sjóðurinn veitir styrki til skilgreindra verkefna og atburða
- Sjóðurinn veitir ekki rekstrarstyrki
Verkefni sem koma einkum til greina:
- Verkefni á sviði umhverfis-, náttúru- og auðlindamála
- Listir, menning og menntun
- Forvarnar- og æskulýðsstarf
- Heilsa og hreyfing
Verkefni sem alla jafna koma ekki til greina eru:
- Rannsóknir og vísindi (Orkurannsóknasjóður veitir styrki til námsfólks og rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga)
- Almenn útgáfa, svo sem bóka, geisladiska og kvikmynda
- Námsstyrkir
- Utanlandsferðir
Almennar fyrirspurnir samfelagssjodur@landsvirkjun.is