Fara í efni
Byggðarannsóknarsjóður

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála.

Umsóknarfrestur er til hádegis, 3. mars 2025 (til kl. 12:00). Byggðarannsóknasjóður hefur allt að 17,5 m.kr. til úthlutunar. Styrkir verða veittir til eins árs.

Í umsóknum skal koma fram greinargóð lýsing á rannsókn, markmiðum, ávinningi, nýnæmi og hvernig rannsóknin styður við tilgang sjóðsins. Gera þarf grein fyrir tengslum rannsóknar við byggðaþróun og eftir atvikum hvernig rannsókn fellur að áherslum byggðaáætlunar 2022-2036.

Eftirfarandi þættir hafa vægi við mat á umsóknum:

  • Hvernig verkefnið styður við tilgang sjóðsins og tengist byggðaþróun.
  • Vísindalegt og hagnýtt gildi verkefnis.
  • Nýnæmi verkefnis.
  • Gæði umsóknar (skýr markmið, vönduð rannsóknaráætlun og hnitmiðaður texti).

Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar. Sjá nánar:

Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir

hannadora@byggdastofnun.is / sími 455 5454

Frekari upplýsingar um Byggðarannsóknasjóð er að finna á vef Byggðastofnunar. Styrkir úr Byggðarannsóknasjóði hafa verið veittir frá árinu 2015. Alls hafa 43 verkefni hlotið styrk á árunum 2015-2024 að heildarfjárhæð 106,4 m.kr. Á árinu 2024 fengu eftirfarandi sex verkefni styrk:

- Svæðisbundinn stuðningur í íslenskum landbúnaði. Styrkþegi er LbhÍ, Jóhanna Gísladóttir.

- Ferðaleiðir um fámen svæði. Rannsókn á aðkomu og sýn heimamanna á uppbyggingu ferðamannaleiða. Styrkþegi: Rannsóknamiðstöð ferðamála, Þórný Barðadóttir.

- Óstaðbundin störf: Hvernig er reynslan? Styrkþegi: RHA-Rannsóknamiðstöð HA, Sæunn Gísladóttir.

- Dreifbýlisvæðing eða þéttbýlisflæði? Byggðaþróun á Selfossi, Suðurlandi og annars staðar á suðvestursvæðinu. Styrkþegi: Þóroddur Bjarnason.

- Beinar og óbeinar byggðaaðgerðir og þróun mannfjölda í sex sveitarfélögum: Samanburðarrannsókn. Styrkþegi: Ari Klængur Jónsson, HÍ.

- Nýliðun og kynslóðaskipti í landbúnaði – hindranir og hvatar. Styrkþegi: Samtök ungra bænda, Gréta Bergrún Jóhannesdóttir.

Byggðarannsóknarsjóður