Yfir hundrað milljónir í styrki til fjölbreyttra umhverfisverkefna
Yfir hundrað milljónir í styrki til fjölbreyttra umhverfisverkefna
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur úthlutað um 111 milljónum króna til umhverfisverkefna og reksturs félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum á grundvelli umsókna. Ráðuneytið hefur veitt frjálsum félagasamtökum sem starfa að umhverfismálum rekstrarstyrki ásamt verkefna- og ferðastyrkjum frá árinu 2000, en til stendur að endurskoða úthlutunarreglur vegna styrkjanna.
Í ár hlutu 40 verkefni verkefnastyrk og nemur heildarupphæð styrkjanna tæplega 62 milljónum króna. Þar af er einn styrkur veittur til 2ja ára og tveir styrkir til 3ja ára.
Þá hefur ráðuneytið úthlutað 49 milljónum króna í rekstrarstyrki til 23 frjálsra félagasamtaka.
Fjölbreytt verkefni styrkt
Alls bárust ráðuneytinu 75 umsóknir um verkefnastyrki og var heildarupphæð umsókna 219,6 milljónir króna, þar af tæplega 165 milljónir fyrir árið 2022. Ná verkefnin sem hljóta styrki að þessu sinni ná yfir fjölbreytt svið skógræktar, hringrásarhagkerfis, náttúruverndar loftslagsverkefna, landupplýsinga, alþjóðlegs samstarfs og plastmengunar svo dæmi séu tekin.
Meðal þeirra verkefna sem nú hljóta styrki eru kortlagning aðlögunar Íslands að hringrásarhagkerfinu, vitundarvakning um fatasóun, endurhæfingastöð lundapysja, innleiðing stafrænnar kortlagningar skógræktar, sem og verkefni sem snúa að fuglalífi, víðernum og vindorku. Þá má einnig nefna landbætur, náttúrukort, ráðstefnur, málþing og fundi um ólík umhverfismál, sem og umhverfisfræðslu í ýmsu formi.
Markhóparnir sem verkefnin ná til eru allt frá eldri borgurum til ungmenna og allt þar á milli.
„Stjórnvöld leysa fá mál ein og óstudd og frjáls félagasamtök og einstaklingar geta innt af hendi mikilvægt starf í umhverfismálum og náttúruvernd. Bestu hugmyndir kvikna líka oft hjá þeim standa nærri vandanum, hafa skýra yfirsýn og brenna fyrir umbótum til að bæta sitt nærsamfélag,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. „Þess vegna er líka mikilvægt að geta stutt við verkefni innan þessara geira, sem ella myndu ef til vill ekki ná fram að ganga.“
Eftirtalin verkefni hlutu styrk að þessu sinni:
Nafn umsækjanda |
Heiti verkefnis |
Upphæð |
Ár |
Beluga Operating Company |
Endurhæfingarstöð lundapysja 2022 |
600.000 |
|
David Ostman |
A national standard and guidance on wind farm suitability in Iceland |
1.260.000 |
|
Eldvötn - samtök um náttúruvernd |
(Síðbúið) afmælismálþing í tilefni áratugar starfsafmælis Eldvatna |
600.000 |
2 |
Environice ehf |
Uppfærsla á Kennslubók um mengun sjávar |
600.000 |
|
Ferðaklúbburinn 4x4 |
Landbætur og aukið öryggi ferðamanna á hálendi Íslands |
780.000 |
|
Fuglavernd |
Alheimsráðstefna og aðalfundur BirdLife International |
350.000 |
|
Fuglavernd |
Fugl ársins 2022 |
1.700.000 |
|
Fuglavernd |
Skipulögð skráning flækingsfugla á Íslandi- framhaldsumsókn |
350.000 |
|
Jöklarannsóknafélag Íslands |
Jöklasýn: Úr sögu Jöklarannsóknafélagsins í máli en aðallega myndum |
2.000.000 |
|
KPMG ehf. |
Kortlagning aðlögunar Íslands að hringrásarhagkerfinu |
5.600.000 |
|
Kvenfélagasamband Íslands |
Vitundarvakning um fatasóun |
1.700.000 |
|
Landvernd |
Ferð vegna 27. þings aðildarríkja Loftslagssamnings SÞ |
600.000 |
|
Landvernd |
Ferðastyrkur norrænt samstarf |
350.000 |
|
Landvernd |
Ábyrgt ferðafrelsi |
570.000 |
|
Landvernd |
Erlend reynsla í Umhverfismálum |
1.550.000 |
|
Landvernd |
Náttúrubörn |
4.300.000 |
|
Landvernd |
Náttúrukortið |
2.780.000 |
|
Laxfiskar |
Fjölstofnavöktun á útbreiðslu og atferli Þingvallaurriða |
2.000.000 |
|
LÍSA samtök um landupplýsingar |
Erlent samstarf |
350.000 |
|
Náttúruverndar-samtök Íslands |
Ferðastyrkur: Alþjóðlegur samningur um verndun líffræðilegs fjölbreytileika sjávar |
850.000 |
|
Náttúruverndar-samtök Íslands |
Ferð vegna 27. þings aðildarríkja Loftslagssamnings SÞ |
600.000 |
|
Nicole Suehring |
Plastplötur úr fiskinetum á Vestfjörðum |
1.000.000 |
|
Plastlaus september félagasamtök |
Plastlaus september |
4.000.000 |
|
Sjónhending ehf |
Í ríki Vatnajökuls |
6.000.000 |
3 |
Skotveiðifélag Íslands |
Alþjóðlegt samtarf |
350.000 |
|
Skógræktarfélag Árnesinga |
Þjóðleiðir sem gönguleiðir |
700.000 |
|
Skógræktarfélag Eyfirðinga |
Fræðslufundir, fræðslugöngur og pistlar um fróðleik |
1.200.000 |
|
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar |
Skógrækt í Hamranesi, Hafnarfirði |
2.000.000 |
|
Skógræktarfélag Íslands |
Fundur European Forest Network á Íslandi |
1.245.000 |
|
Skógræktarfélag Íslands |
Innleiðing stafrænnar kortlagningar skógræktar |
2.900.000 |
2 |
Skógræktarfélag Íslands |
Opin skógur - umhirða eldri reita |
2.000.000 |
|
Skógræktarfélag Íslands |
Skógarfólkið |
2.200.000 |
|
Skógræktarfélag Rangæinga |
Útivist fyrir alla! |
780.000 |
|
Skógræktarfélag Reykjavíkur |
Fræðsluskilti í Heiðmörk |
1.450.000 |
|
Skrauti |
Málþing um korlagningu víðerna Íslands |
500.000 |
|
Surtseyjarfélagið |
Friðlandið í Surtsey: rannsóknir og fræðsla |
500.000 |
|
Ungir umhverfissinnar |
Loftslagsverkfallið |
1.200.000 |
|
Ungir umhverfissinnar |
Ferð vegna 27. þings aðildarríkja Loftslagssamnings SÞ |
600.000 |
|
Ungir umhverfissinnar |
Kynningastarf Ungra umhverfissinna |
600.000 |
|
Ungir umhverfissinnar |
Sólin og svo kom Tunglið |
3.280.000
61.995.000 |
3 |
49 milljónir til reksturs félagasamtaka
Þá hefur ráðherra úthlutað styrkjum til reksturs 23 félagasamtaka sem starfa á málasviði ráðuneytisins. Í ár námu styrkirnir 49 milljónum króna.
Eftirtalin félagasamtök hlutu rekstrarstyrk á árinu 2022:
Samtök/félag |
Styrkfjárhæð 2021 |
Blái herinn |
600.000 |
Eldvötn |
600.000 |
Ferðaklúbburinn 4x4 |
500.000 |
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands |
400.000 |
Fuglavernd |
3.000.000 |
Grænni byggð |
600.000 |
Hið íslenska náttúrufræðifélag |
1.300.000 |
Hringrásarsetur Íslands |
400.000 |
Landvernd |
16.070.000 |
LÍSA Samtök |
400.000 |
Náttúruverndarsamtök Íslands |
7.510.000 |
Náttúruverndarsamtök Suðurlands |
970.000 |
Samtök Útivistarfélaga - SAMÚT |
2.110.000 |
Skotveiðifélag Íslands - SKOTVÍS |
1.170.000 |
Skógræktarfélag Akranes |
400.000 |
Skógræktarfélag Eyfirðinga |
400.000 |
Skógræktarfélag Hafnafjarðar |
400.000 |
Skógræktarfélag Íslands |
7.070.000 |
Skógræktarfélag Kópavogs |
400.000 |
Skógræktarfélag Reykjavíkur |
400.000 |
Skrauti |
400.000 |
SUNN - Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi |
800.000 |
Ungir umhverfissinnar |
2.900.000 |
49.140.000 |