Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 72 verkefna, sem sóttu um í sjóðinn á vormisseri, að ganga til samninga um nýja styrki.
Í boði voru styrktarflokkarnir Hagnýt rannsóknaverkefni, Fræ, Sproti, Vöxtur og Markaðsstyrkur. Alls bárust 459 umsóknir og er árangurshlutfall styrktra verkefna sem hlutfall af innsendum umsóknum 16%. Haft verður samband við verkefnastjóra þessara verkefna og þeir boðaðir til samningafundar.
Í þessari úthlutun eru styrkveitingar til nýrra verkefna 897 milljónir króna á þessu ári en þar sem verkefnin eru til allt að þriggja ára nemur heildarkostnaður vegna þeirra 1.755 milljónum króna. Þetta er stærsta einstaka úthlutun Tækniþróunarsjóðs frá upphafi. Síðustu ár hafa fjárframlög til sjóðsins verið um 2,3 milljarðar króna en í samræmi við stefnu Vísinda- og tækniráðs sem samþykkt var á síðasta ári voru fjárveitingar til sjóðsins hækkaðar í 3,6 milljarða á árinu 2021.
Næsti umsóknafrestur um fyrirtækjastyrki verður 15. september 2021 og verður úthlutun vegna þeirra tilkynnt undir lok ársins. Opið er allt árið fyrir umsóknir í styrktarflokknum Fræ og Einkaleyfastyrkir.
Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja við rannsóknir og þróunarstarf sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi en hann er opinn fyrir nýsköpunarverkefnum úr öllum atvinnugreinum. Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem býður upp á fjölmarga styrktarflokka fyrir verkefni á mismunandi stað í vaxtarferli fyrirtækja.
Alls voru 5 verkefni á Norðurlandi eystra (af 72) sem er boðið til samninga við sjóðinn að þessu sinni en þau eru:
- Snoðbreiða: verðlítil ull verður verðmæt
- Fiskvinnsla - Næsta kynslóð
- NordPlast
- Ylur: Hátæknigróðurhús á Norðurlandi
- Ný meðferð við arfgengri íslenskri heilablæðingu
Við óskum styrkþegum innilega til hamingju með árangurinn.
Heildarlistinn 2021*:
Heiti verkefnis |
Verkefnisstjóri |
Umsækjandi |
Dermolíðar |
Þórarinn Guðjónsson |
Háskóli Íslands |
Efnisrannsóknir&líkanagerð jarðhitaborholufóðringa |
Sigrún Nanna Karlsdóttir |
Háskóli Íslands |
GeoEjector: Tenging lágþrýsti- og háþrýstiborholna |
María Sigríður Guðjónsdóttir |
Háskólinn í Reykjavík ehf. |
Hönnun Rafskauta til Afoxunar Niturs |
Helga Dögg Flosadóttir |
Háskóli Íslands |
Mælingar á gösum og ryki með flýgildum |
Gunnlaugur Einarsson |
Íslenskar orkurannsóknir |
Rauntíma hljóðhermun fyrir stafræna afþreyingu |
Rúnar Unnþórsson |
Háskóli Íslands |
Sjávarlíffjölliður sem bæta lækningatæki - MariMed |
Már Másson |
Háskóli Íslands |
Steindabinding koldíoxíðs leyst í sjó |
Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir |
CarbFix ohf. |
Verkfræðileg hönnun afoxunar á CO2 í eldsneyti |
Egill Skúlason |
Háskóli Íslands |
WoundSHIELD Nýgræðing þrálátra sára |
Guðmundur H Guðmundsson |
Háskóli Íslands |
Heiti verkefnis |
Verkefnisstjóri |
Umsækjandi |
Cirrus — Skapandi hljóðviðbót komið á markað |
Halldór Eldjárn |
Halldór Eldjárn |
Fjöðrunarappið |
Hinrik Johannsson |
Hinrik Johannsson |
Framþróun dórófóna |
Halldór Úlfarsson |
Halldór Úlfarsson |
Frágangur: Örugg, rafræn og einföld bílaviðskipti |
Helgi Pjetur Jóhannsson |
Bílafrágangur ehf. |
HorseDay |
Oddur Olafsson |
Mom ehf |
Hönnun og þróun vöru til fækkunar spítalasýkinga. |
Alexander Jóhönnuson |
SVAI ehf. |
Kolefnisjöfnun með menntun stúlkna |
Sigrún Kristjánsdóttir |
SoGreen |
Lýsi og prótein unnin með kuldvirkum ensímum |
Þórður Bergsson |
North Seafood Solutions ehf. |
NordPlast |
Sean Michael Scully |
Hemp Pack ehf. |
Parka Camping - Yfirsýn |
Ari Björn Ólafsson |
Computer Vision ehf. |
PROREHAB til þjálfunar á gervifætur og spelkur |
Kim Peter Viviane De Roy |
K!M ehf. |
Showdeck |
Friðþjófur Þorsteinsson |
Friðþjófur Þorsteinsson |
SESAM - Stafræn eignastýring samfélagslega ábyrgra |
Tómas Áki Gestsson |
Metria ehf. |
Shaker |
Erla Björgheim Pálsdóttir |
Viral Uno ehf. |
Sjálfvirk textagerð til rannsókna |
Elena Callegari |
Elena Callegari |
Umbyltandi skyrnasl á erlendan markað |
Hörður Guðjón Kristinsson |
Responsible Foods ehf. |
Youwind vöxtur með Pixel |
Eðvald Eyjólfsson Eðvaldsson |
YOUWIND Renewables ehf. |
ÞARAPLAST |
Julie Encausse |
Marea ehf. |
Þjálfun lækna í bráðatilvikum með sýndarveruleika |
Birgir Már Þorgeirsson |
Medagogic ehf. |
Heiti verkefnis |
Verkefnisstjóri |
Umsækjandi |
Aurbjörg Premium - Snjöll fjármálaþjónusta |
Auður Björk Guðmundsdóttir |
Two Birds ehf. |
Avo Inspector |
Brynja Huld Óskarsdóttir |
Avo Software ehf. |
CGRP hemill til meðferðar á Psoriasis |
Bjarki Guðlaugsson |
Nepsone ehf. |
Fiskvinnsla - Næsta kynslóð |
Hólmfrídur Sveinsdóttir |
Vélfag ehf. |
Genki Intent — Frá hugmynd að veruleika |
Ólafur Bjarki Bogason |
Genki Instruments ehf. |
Landmass - Umhverfishermun fyrir tölvuleiki |
Gísli Konráðsson |
Arctic Theory ehf. |
Lýsi og fríar fitusýrur gegn kórónaveirum og kvefi |
Rakel Sæmundsdóttir |
Lýsi hf. |
Myriad - Þjónusta með sjálfvirkum drónum |
Tryggvi Stefánsson |
Svarmi ehf. |
Niðurtröppun.is |
Kjartan Þórsson |
Nordverse Medical Solutions ehf. |
Ný meðferð við arfgengri íslenskri heilablæðingu |
Hákon Hákonarson |
Arctic Therapeutics ehf. |
Orku- og vatnssparandi rækjupillunarvél |
Páll Mar Magnússon |
Martak ehf. |
Rannsóknir á virkni jarðhitakísils á mannslíkamann |
Fida Muhammed Abu Libdeh |
geoSilica Iceland hf. |
Sjálfvirknivæðing í veikleika- og áhættustjórnun. |
Júlía Oddsdóttir |
Nanitor ehf. |
SVAPP – Smáforrit um svefn og svefnvanda |
Erla Björnsdóttir |
Mobile health ehf. |
Trackwell FiMS |
Kolbeinn Gunnarsson |
Trackwell hf. |
UPCO2R |
Ásgeir Ívarsson |
Gefn ehf. |
Vindtúrbínur fyrir fjarskipta og eftirlitskerfi |
Sæþór Ásgeirsson |
IceWind ehf. |
Heiti verkefnis |
Verkefnisstjóri |
Umsækjandi |
Alþjóðleg markaðssókn Ankeri Platform |
Kristinn Aspelund |
Kristinn Aspelund |
Græn íslensk metanóltækni á Indlandsmarkað |
Ómar Freyr Sigurbjörnsson |
CRI hf. |
Markaðssetning á Kerecis Gingiva Graft |
Gunnar Jóhannsson |
KERECIS hf. |
Markaðssetning tækni til framleiðslu nítrats |
Hákon Örn Birgisson |
Atmonia ehf. |
Markaðssókn fyrir Aries |
Silja Rún Guðmundsdóttir |
Tern Systems ehf. |
Memaxi PRO - markaðssetning á Íslandi |
Páll Borg |
Memaxi ehf. |
Sjálfbærar borgir framtíðarinnar 3: Markaðssetning |
Pall Jakob Lindal |
ENVRALYS ehf. |
Sókn Memento á Bandaríkjamarkað |
Arnar Jónsson |
Memento |
Söluátak vegna kjúklingakælingar |
Ester Ósk Pálsdóttir |
Thor Ice Chilling Solutions ehf. |
Undirbúningur markaðssóknar YAY í Skandinavíu |
Ari Þorgeir Steinarsson |
Yay ehf. |
Uppbygging innviða fyrir dreifingu |
Karl Birgir Björnsson |
K88 ehf. |
Heiti verkefnis |
Verkefnisstjóri |
Framleiðsla e-ammoníaks |
Teitur Gunnarsson |
Fræ til Framtiðar - SnjallRæktun |
Gunnar Ólafsson |
Fyrsta frumgerð sjálfvirkra róbota til ræktunar |
Þórður Jónsson |
Guru |
Árni Steinn Viggósson |
Hagkvæmisathugun á framleiðslu á barnamat |
Vaka Mar Valsdóttir |
Lífplast fyrir matvæli unnið úr sjávarþörungum |
Sigríður Kristinsdóttir |
Metan sem orkugjafi fyrir gróðurhús |
Ólafur Jóhannsson |
Rannsóknir á virkni MgSiO3 sem jarðvegsbætiefni |
Hrafnhildur Svansdottir |
Sirkúla |
Myrra Leifsdottir |
Snjöll vöktun á leyfiskostnaði |
Þór Sigurðsson |
Spíra - ný leið til að læra íslensku |
Alexandra Mjöll Young |
StoryBookFlix - myndbækur fyrir börn |
Arnar Arinbjarnarson |
Urbanixm |
Börkur Sigurbjörnsson |
Verðlítil ull verður verðmæt. -Snoðbreiða- |
Kristín Sigríður Gunnarsdóttir |
Ylur: Hátæknigróðurhús á Norðurlandi |
Hörn Halldórudóttir Heiðarsdóttir |
* Listinn er birtur með fyrirvara um hugsanlegar villur