Fara í efni

Verslun í dreifbýli – auglýst eftir umsóknum

Verslun í dreifbýli – auglýst eftir umsóknum

Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A.9 Verslun í dreifbýli.

Markmið aðgerðarinnar er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Annars vegar er hægt að sækja um rekstrarstyrk og hins vegar styrk til búnaðarkaupa.

Allt að 17 milljónum króna verður veitt vegna ársins 2025. Umsækjendur skulu taka mið af úthlutunarreglum innviðaráðherra og auglýsingu um styrkina.

Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudagsins 11. nóvember 2024. Umsóknum skal skilað í gegnum rafrænt umsóknaform Byggðastofnunar. Þriggja manna valnefnd metur allar umsóknir og gerir tillögu til innviðaráðherra að úthlutun styrkja. Áætlað er að niðurstöður innviðaráðherra liggi fyrir í desember 2024.

Getum við bætt síðuna?