Fara í efni

Verkefnastjóri á sviði umhverfis- og atvinnuþróunar

Verkefnastjóri á sviði umhverfis- og atvinnuþróunar

Leitað er að öflugum verkefnastjóra á sviði umhverfis- og atvinnuþróunar með starfsstöð í Gíg í Þingeyjarsveit. Verkefnið er samstarf SSNE og Þingeyjarsveitar.

Um fullt starf er að ræða og er ráðið tímabundið til tveggja ára, með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Græn skref SSNE.
  • Stuðningur við sveitarfélög á sviði loftslags- og úrgangsmála.
  • Samantekt og miðlun sjálfbærniupplýsinga.
  • Verkefni tengd fjölnýtingu jarðvarma.
  • Verkefni tengd atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsveit.
  • Önnur verkefni sem tengjast samfélags- og sjálfbærnimálum.
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla á sviði verkefnastjórnunar.
  • Þekking á sviði umhverfis- og orkumála.
  • Reynsla af atvinnu- og byggðaþróunarverkefnum og/eða nýsköpun æskileg.
  • Hæfni til að setja fram upplýsingar með aðgengilegum og fjölbreyttum hætti.
  • Lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
Getum við bætt síðuna?