Velferðartæknimessa í Fjallabyggð
Velferðartæknimessa í Fjallabyggð
Þann 18. september nk. munu Hátindur 60+ og Fjallabyggð bjóða sveitarfélögum, stofnunum og hverjum þeim sem hafa áhuga á velferðartæknilausnum að koma og kynnast lausnum sem styðja við sjálfstæða búsetu í heimahúsum. Einnig verða kynntar hugbúnaðarlausnir sem og lausnir sem nýtast stærri skipulagsheildum.Við hefjum dagskrá kl: 10:00 í Tjarnarborg Ólafsfirði með örkynningum frá sýningaraðilum en að þeim loknum er hægt að eiga nánara samtal.
Viðburðurinn er opin öllum.
Skráning á viðburðinn er hér:
https://forms.gle/4xi8hc1msmeXLwDG7
Ef einhverjar spurningar vakna þá er hægt að hafa samband á netfangið hannasigga@hatindur.is