Valdefling og óskir ungmenna í umferðaröryggismálum
Valdefling og óskir ungmenna í umferðaröryggismálum
Dagana 14. og 15. október 2024 fór fram ungmennaþing SSNE í Þingeyjarsveit. Þetta var í fjórða sinn sem slíkt þing er haldið og er fulltrúum allra sveitarfélaga á starfssvæðinu boðið til þátttöku. Yfirmarkmið ungmennaþinganna hefur verið og er að valdefla ungt fólk, styrkja tengsl þeirra við hvert annað og efla samvinnu á milli sveitarfélaga. Þema ársins var lýðræði. Það mætti því segja að ungmennaþingið í ár hafi lagt upp úr því að efla ungmennin í að beita röddum sínum, hlusta á fjölbreytt rök og vera virkir þátttakendur í eigin samfélagi.
Ungmennin tóku virkan þátt í fjölbreyttum vinnustofum. Ein af þeim snéri að því að læra að útbúa erindi til sveitastjórna með tilheyrandi rökum. Þar sem áhugaverðast er að læra slíkt vinnulag með raunverulegum viðfangsefnum, var unnið með samgöngur í sveitarfélögunum. Sigurborg Haraldsdóttir verkefnastjóri SSNE á sviði umhverfis- og skipulagsmála sá um fræðsluinnlegg og var ungmennahópunum innan handar í útfærsluvinnu þeirra.
Tilgangur verkefnis var í raun tvíþættur, annars vegar að nota útfærslu á raundæmi til að hvetja ungmenni og sýna þeim hvernig hægt er að nýta lýðræðislega þátttöku til að hafa áhrif á eigið samfélag. Hins vegar að vekja íbúa og sveitarstjórnarfólk til umhugsunar um mikilvægi þess að hafa hagsmuni ungmenna að leiðarljósi þegar ákvarðanir eru teknar og nýta farveg ungmennaráða til að fá hugmyndir og þarfir ungs fólks fram.
Hér má sjá dæmi um erindi ungmenna í umferðaröryggismálum til Eyjafjarðarsveitar.
Almennt ræddu ungmennin mikið um sitt ferðafrelsi og vildu fá betri tengingar við Landsbyggðarstrætó ásamt uppbyggingu hjólaskýla við stoppistöð strætó. Þau lögðu mikla áherslu á uppbyggingu göngu- og hjólastíga innanbæjar og milli sveitarfélaga því þau vilda hafa meira val og þannig auka ferðafrelsi sitt til muna. Langflest vildu bæta lýsingu á gönguleiðum til og frá skóla og íþróttamiðstöðvum þar sem þau upplifa sig ekki örugg í myrkrinu. Ungmenninin voru dugleg að benda á gönguþveranir sem væru ekki upphækkaðar og með óþarfa krókaleiðum. Þau vildu líka minnka umferðarhraða í sínu nærumhverfi með því að þrengja götur, breikka gangstéttar í 3 metra og bæta við öruggum gönguþverunum.
Heilt yfir var mikil umræða og ánægja meðal þeirra að fá loksins að segja frá sinni upplifun og sömuleiðis að fá að koma þeim á framfæri við sína sveitarstjórn. Óhætt er að segja að þau bindi miklar væntingar við að fá tillögur sínar framkvæmdar og meira öryggi í sínu umhverfi. Umhverfi sem þau nota dags daglega.
Tillögur allra ungmennaráðanna má finna í skýrslu ungmennaþings sem birt verður fljótlega og hlekkur settur hér.
Þingið var vel heppnað og mætti segja að tvær ráðstefnur hafi verið keyrðar samtímis, annars vegar fyrir ungmennin og hins vegar fyrir starfsfólk sveitarfélaga sem sinnir málefnum ungmenna. Þátttakendur voru 45, ungmennin á aldrinum 13-17 ára frá flestum sveitarfélögum landshlutans. Dagskrárliðir voru afar fjölbreyttir og faglegir; Lýðræðislestin lagði t.d. braut milli Alþingis og ungmenna á NE með vinnustofu um mikilvægi lýðræðis þar sem ungmennin fengu m.a. að æfa sig í ferlinu við að koma frumvarpi í gegnum Alþingi, Bergið headspace fjallaði um andlega heilsu ungmenna og hvert þau gætu leitað sér aðstoðar, fulltrúar frá Samfés fjölluðu um ungmenni sem hreyfiafl og samstarf félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á landsvísu, Sigríður frá Mögnum hélt sjálfseflandi vinnustofu og fræðslu um teymisvinnu og Pétur hjá Draumaleikhúsinu þjálfaði krakkana í að fara út fyrir boxið og tala fyrir framan aðra. Nánari upplýsingar um dagskrárliði má finna í samantekt um ungmennaþing.
SSNE ásamt starfsfólki sveitarfélaga sér um skipulag og umsýslu ungmennaþinga og þakkar Þingeyjarsveit kærlega fyrir góðar móttökur! Framtíðin er björt með þetta flotta unga fólk í fararbroddi í landshlutanum.
Hér má sjá fyrri frétt frá ungmenningaþinginu: Fréttir úr landshlutanum 2045 – fríar getnaðarvarnir og tíðarvörur
Nánari upplýsingar um áhersluverkefni SSNE og tillögur til áhersluverkefna má finna hér.