Fara í efni

Útsýnispallur á Bakkafirði vígður

Verkefnisstjórn Betri Bakkafjarðar á nýjum útsýnispalli. Mynd/KÞH.
Verkefnisstjórn Betri Bakkafjarðar á nýjum útsýnispalli. Mynd/KÞH.

Útsýnispallur á Bakkafirði vígður

Sólin braust út á milli skýjanna eftir skúri gærdagsins þegar nýr útsýnispallur á Bakkafirði var vígður með hátíðarbrag. Við vígsluna blessaði séra Þuríður W. Árnadóttir pallinn sem stendur við gömlu höfnina og gengur fram á klappirnar miðsvæðis í kauptúninu. Þaðan er gott útsýni út Bakkaflóa og Gunnólfsvíkurfjall blasir fagurblátt við svo draumskáldin vakna. Um er að ræða fyrsta áfanga verkefnisins Hafnartanginn á Bakkafirði – áningarstaður við ysta haf sem hlaut styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Fyrirtækið Garðvík á Húsavík í samvinnu við Faglausn sá um hönnun og smíði útsýnispallsins. Sérstaklega er gætt að góðu hjólastóla aðgengi, líkt og vera ber. Stund á pallinum ætti að færa gestum fegurð, gleði og frið.

Getum við bætt síðuna?