Fara í efni

UPPTAKTURINN – tónleikar og þér er boðið!

UPPTAKTURINN – tónleikar og þér er boðið!

Flutt verða átta glæný lög eftir ungmenni á aldrinum 10-16 ára núna á sunnudaginn þann 27. apríl kl. 17 í Hofi. Greta Salóme og Kristján Edelstein útsettu lög ungmennanna fyrir hljómsveit og það eru atvinnuhljóðfæraleikarar sem flytja verk þeirra á stóra sviðinu í Hamraborg.

Ungmennin sjö hafa unnið með listafólkinu að útsetningu laga sinna og nú er uppskeruhátíð! Þar sem þau sitja út í sal og njóta afrakstursins ásamt gestum.

Verkin átta voru valin af dómnefnd úr fjölda umsókna, sem bárust í Upptaktinn í ár.

Ungtónskáld Upptaktsins 2025 eru:

Alex Parraguez Solar – Sumargleði vetursins

14 ára úr Naustaskóla

Hákon Geir Snorrason – Lifðu lífinu lifandi

11 ára úr Lundarskóla

Heimir Bjarni Steinþórsson – Racket & To Thrive

14 ára úr Lundarskóla

Hjördís Emma Arnarsdóttir – Ljósadans

12 ára úr Þelamerkurskóla

Hjörtur Logi Aronsson – Það sem er best

12 ára úr Brekkuskóla

Ísólfur Raymond Matharel – Allegretto

11 ára úr Brekkuskóla

Lára Rún Keel Kristjánsdóttir - Neðansjávarsól

15 ára úr Þelamerkurskóla

Hljómsveitina skipa:

Emil Þorri Emilsson – slagverk og trommur

Greta Salóme – fiðla og söngur

Kristján Edelstein – gítar

Stefán Ingólfsson – bassi

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir - selló

Þórður Sigurðarson – hljómborð og harmonika

Ágúst Brynjarsson – söngur lagsins Lifðu lífinu lifandi.

 

Útsetning verkanna fyrir hljómsveit: Kristján Edelstein og Greta Salóme.

Tónlistarstjóri: Greta Salóme.

 

Enginn aðganseyrir og allir eru hjartanlega velkomnir á tónleikana!

 

Upptakturinn í Hofi er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu, styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.

Upptakturinn er þátttakandi í Barnamenningarhátiðinni á Akureyri.

Getum við bætt síðuna?