Umsóknarfrestur í Nýsköpunarsjóð námsmanna framlengdur til 15. febrúar 2021
Umsóknarfrestur í Nýsköpunarsjóð námsmanna framlengdur til 15. febrúar 2021
Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu að rannsókna- og þróunarverkefnum.
- Framlengdur umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2021 kl. 15.00.
Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.
Umsóknir um styrki eru m.a. metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.
Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn umsjónarmanns frá háskóla, stofnun eða fyrirtæki.
Hverjir geta sótt um?
- Háskólanemar í grunn- og meistaranámi.
- Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknar- og/eða þróunarverkefni.
Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.
Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar er að finna á síðu Nýsköpunarsjóðs námsmanna.
Einnig er hægt að senda fyrirspurn á nsn@rannis.is