Tíu verk valin til þátttöku í Upptaktinum
Skrifað
29.03.2022
Flokkur:
Fréttir
Tíu verk valin til þátttöku í Upptaktinum
Tíu verk, eftir 12 ung og upprennandi tónskáld, hafa verið valin til þátttöku í Upptaktinum á Akureyri. Höfundarnir munu vinna áfram að útsetningu sinna verka í vinnusmiðjum undir leiðsögn reyndra tónlistarmanna, þeim Gretu Salóme og Kristjáni Edelstein.
Stóra stundin verður svo sunnudaginn 24. apríl þegar tónskáldin og aðstandendur þeirra hlýða á atvinnuhljóðfæraleikara flytja verkin á glæsilegum tónleikum í Menningarhúsinu Hofi.
Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu.
Upptakturinn er styrktur af SSNE.