Fara í efni

Þingeyjarsveit tekur sitt fyrsta Græna skref

Ingimar Ingimarsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, tekur á móti viðurkenningu fyrir fyr…
Ingimar Ingimarsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, tekur á móti viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið frá Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur, verkefnastjóra SSNE.

Þingeyjarsveit tekur sitt fyrsta Græna skref

Grænum skrefum SSNE heldur áfram að fjölga og í síðustu viku tók Skrifstofa Þingeyjarsveitar við viðurkenningu fyrir að hafa stigið sitt fyrsta Græna skref af fimm.

Starfsfólk Þingeyjarsveitar hefur verið einstaklega framtakssamt í þessari vinnu og hafa þau náð þeim einstaka árangri að uppfylla hvert einasta atriði innan fyrsta skrefsins en þátttakendur þurfa einungis að uppfylla 90% atriða til fyrsta skrefinu sé formlega náð. Mikill samhugur einkennir vinnu Þingeyjarsveitar og fátt annað rætt á kaffistofunni en Grænu skrefin.

Meðal þess sem Skrifstofa Þingeyjarsveitar hefur innleitt í sína starfsemi er að fasa út þær hreinlætis- og ræstivörur sem ekki eru umhverfisvottaðar, koma upp áminningarlímmiðum um orkusparnað og tryggja að skýrt sé hvernig flokkun úrgangs skal háttað á vinnustaðnum.

Verkefnastjórar SSNE þakka fyrir góðar móttökur og óska Þingeyjarsveit innilega til hamingju með fyrsta skrefið og velfarnaðar í áframhaldandi innleiðingu grænna skrefa.

Getum við bætt síðuna?