Fara í efni

Styrkir til Norðurþings

Mynd:  Gunnar Páll Baldursson
Mynd: Gunnar Páll Baldursson

Styrkir til Norðurþings

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsti styrki á málefnasviði ráðherra á haustdögum. Menningar- og hrútadagar á Raufarhöfn fengu veglegan styrk úr þeim potti að upphæð 500.000 kr og má því búast við sérstaklega flottri dagskrá á menningar- og hrútadögum á Raufarhöfn sem haldnir verða 24. september til 3. október nú í ár.

Ungmannafélagið Austri sem vinnur nú að hönnun og uppsetningu á frisbígolfvelli á Raufarhöfn fékk einnig veglegan styrk frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og standa vonir til að hægt verði að koma upp velli í sumar. Slíkir vellir eru víða á starfssvæði SSNE en tveir voru teknir í notkun síðasta sumar á Þórshöfn sem og í Grímsey.

Til hamingju þið sem styrkina sóttuð og fenguð - þetta eru flott og verðug verkefni. 

Getum við bætt síðuna?