Fara í efni

Styrk­ir úr Sam­starfs­sjóði við at­vinnu­líf um heims­mark­mið Sam­einuðu þjóðanna

Styrk­ir úr Sam­starfs­sjóði við at­vinnu­líf um heims­mark­mið Sam­einuðu þjóðanna

Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki í Samstarfssjóð við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna fyrirtækja í þróunarlöndum.

Veitt verða framlög til samstarfsverkefna er koma til framkvæmdar í lágtekju- og lág millitekjuríkjum auk há millitekju smáeyþróunarríkja sem eru á lista Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (DAC) um viðtökulönd opinberrar þróunaraðstoðar fyrir árið 2020. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu samstarfssjóðsins.

Umsóknum skal skilað inn til utanríkisráðuneytisins fyrir lok 7. desember 2020 í gegnum miðlæga þjónustugátt hins opinbera.

Allar nánari upplýsingar má finna á vef Stjórnarráðs Íslands

Getum við bætt síðuna?