Stuðningur við verslanir í dreifbýli - þrír styrkir til Norðurlands eystra
Stuðningur við verslanir í dreifbýli - þrír styrkir til Norðurlands eystra
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036. Að þessu sinni var úthlutað sautján milljónum kr. til verslana í dreifbýli fyrir árið 2025.
Markmiðið er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum á fámennum markaðssvæðum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Samtals bárust sex umsóknir.
Verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni eru:
- Bakka-Búðin ehf., Reykhólum, rekstrarstyrkur, 5 m.kr.
- Verzlunarfjelag Árneshrepps, rekstrarstyrkur, 3 m.kr.
- Hríseyjarbúðin, styrkur til endurbóta og sjálfvirknivæðingar, 2,5 m.kr.
- North East Travel ehf, Bakkafirði, rekstrarstyrkur, 1,5 m.kr.
- Gunnubúð ehf., Raufarhöfn, styrkur til endurbóta, 3 m.kr.
- Verslunarfélag Drangsness, rekstrarstyrkur, 2 m.kr.
Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerði tillögur til ráðherra. Í valnefnd sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason, sérfræðingur á Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Með valnefnd starfaði Sigríður K. Þorgrímsdóttir sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.