Stefna að stofnun rannsóknaseturs í sameinuðu sveitarfélagi
Skrifað
13.10.2021
Flokkur:
Fréttir
Sveinn Margeirsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps, Dagbjört Jónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Ragnhildur Sigurðardóttir fyrir hönd Svartárkots menningar— náttúru við undirritun viljayfirlýsingarinnar í gamla grunnskólanum á Skútustöðum. Mynd/Skútustaðahreppur.
Stefna að stofnun rannsóknaseturs í sameinuðu sveitarfélagi
Fulltrúar Háskóla Íslands, Svartárkots menningar — náttúru, Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar undirrituðu í gær, 12. október viljayfirlýsingu um að vinna í sameiningu að stofnun rannsóknaseturs á sviði umhverfishugvísinda í sameinuðu sveitarfélagi í Suður-Þingeyjarsýslu en sókn í mennta- og skólamálum er ein af höfuð áherslum í sameiningu Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar.
Viljayfirlýsinguna undirrituðu þau Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Ragnhildur Sigurðardóttir fyrir hönd Svartárkots menningar — náttúru, Sveinn Margeirsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps, og Dagbjört Jónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Markmiðið með stofnun setursins er að efla hugvísindarannsóknir á sviði umhverfismála, skapa vettvang fyrir þverfaglegt samstarf á því sviði og efla atvinnulíf sveitarfélaganna tveggja sem sameinast munu á næsta ári. Lögð verður áhersla á markvissa miðlun þekkingar, samtal milli almennings og fræðasamfélags og að komið verði á fót öflugri miðstöð fyrir skapandi og gagnrýna umræðu um umhverfismál.
Samstarfið miðar að því að á næstu mánuðum fari fram vinna við fjármögnun og annan undirbúning stofnunar setursins, sem verður samstarfsvettvangur Svartárkots menningar - náttúru og Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands. Undirbúningur stofnunar rannsóknaseturs Háskóla Íslands á sviði umhverfishugvísinda er hafinn en Svartárkot menning — náttúra hefur starfað að rannsóknum og haldið námskeið á sviði umhverfishugvísinda í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit síðustu 15 ár í samstarfi við heimamenn og alþjóðlegt teymi vísindamanna.
Fyrirhugað er að setrið verði til húsa í gamla grunnskólanum á Skútustöðum í Mývatnssveit (Hótel Gíg), þar sem viljayfirlýsingin var undirrituð en ríkiseignir festu kaup á húsnæðinu í upphafi þessa árs. Þar verða einnig til húsa fjórar stofnanir sem starfa á sviði umhverfismála: Vatnajökulsþjóðgarður, Umhverfisstofnun, Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn og Landgræðslan.