Fara í efni

START UP STORMUR HEFST Í HAUST - Opið fyrir umsóknir

START UP STORMUR HEFST Í HAUST - Opið fyrir umsóknir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í hraðalinn STARTUP STORM - Vaxtarrými fyrir norðlenska sprota.

Startup Stormur er sjö vikna hraðall fyrir verkefni þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.

Hraðallinn er byggður upp að fyrirmynd viðskiptahraðla. Startup Stormur fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast þrisvar sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Þátttakendur kynnast reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Leitast er eftir þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi.

Startup Stormur hefst 3. október og lýkur 14. nóvember með lokaviðburð þar sem teymin sem taka þátt halda fjárfestakynningar.

Umsóknarfrestur er til og með 20. september og er umsóknareyðublað hér.

Viltu vita meira um Startup Storm? Ekki hika við að hafa samband við Önnu Lind, annalind@ssne.is

Getum við bætt síðuna?