Samningur undirritaður um áfangastaðastofu Norðurlands
Samningur undirritaður um áfangastaðastofu Norðurlands
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað samning við Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um stofnun áfangastaðastofu á Norðurlandi.
Með undirritun samningsins eru orðnar til áfangastaðastofur í öllum landshlutum að undanskildu höfuðborgarsvæðinu en stofnun áfangastaðastofu þar er í undirbúningi. Þar með er leidd til lykta vinna við uppbyggingu stoðkerfis ferðaþjónustu á landsbyggðinni sem hófst í raun með útgáfu áfangastaðaáætlana fyrir alla landshluta árið 2018. Áfangastaðastofur hafa það að meginmarkmiði að stuðla að jákvæðum framgangi svæðisbundinnar ferðaþjónustu með framkvæmd áfangastaðaáætlunar fyrir viðkomandi landsvæði og tryggja að sú áætlun sé í samræmi við m.a. aðra lögbundna áætlanagerð og aðal- og deiliskipulag viðkomandi svæði.
Um árabil hafa landshlutasamtökin tvö á Norðurlandi átt farsælt samstarf við Markaðsstofu Norðurlands. Markaðsstofan mun í framhaldi af fyrrgreindum samningi taka að sér hlutverk áfangastaðastofu fyrir Norðurland.