Rafrænn kynningarfundur á styrkjum Tækniþróunarsjóðs og Netöryggisstyrk Eyvarar
Rafrænn kynningarfundur á styrkjum Tækniþróunarsjóðs og Netöryggisstyrk Eyvarar
Sérfræðingar Tækniþróunarsjóðs í samstarfi við landshlutasamtök SSNE, SSNV og Austurbrú verða með rafrænan kynningarfund
- fimmtudaginn 30. janúar 2025
- kl. 12:00-13:00
Á fundinum munu sérfræðingar á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, verða til viðtals og kynna Netöryggisstyrk Eyvarar og styrkjamöguleika Tækniþróunarsjóðs.
Hlekkur verður sendur í tölvupósti á skráða þátttakendur, skráðu þig hér.
Hér má finna facebook viðburð fundarins, endilega látið áhugasöm fyrirtæki og frumkvöðla vita af fundinum.
Hér er hlekkur beint á teams fundinn: https://teams.microsoft.com/l/meetup-join/19%3ameeting_NjJhOWQwOTItOGQxZi00M2UyLTk3ZjktMDNiOTE1MjI3YzMw%40thread.v2/0?context=%7b%22Tid%22%3a%22764a306d-0a68-45ad-9f07-6f1804447cd4%22%2c%22Oid%22%3a%22fdb57773-ec04-4a5c-bea1-a2513d3cc233%22%7d
SSNE heldur nokkra kynningarfundi á ári í samstarfi við Rannís, ýmist staðfundi og rafræna fundi til að jafna aðgengi og koma til móts við þarfir sem flestra. Síðasti fundur Rannís á Norðurlandi fór fram hjá Drift, miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar á Akureyri. Ávallt er hægt að bóka tíma hjá starfsfólki SSNE sem veitir ráðgjöf vegna umsóknaskrifa og yfirlit yfir umsóknarfresti má finna í viðburðardagatali SSNE. Við mælum með að áhugasöm fylgist með rafrænu fyrirlestrarröðinni ,,Forvitnir frumkvöðlar" en sú næsta verður haldin 4. febrúar kl. 12:00 og fjallar um umsóknarskrif.