Fara í efni

Óstaðbundin störf: jákvæðni og styrkir til að fjölga störfum í landsbyggðunum

Á heimasíðu Byggðastofnunar má finna lista yfir húnsæði fyrir óstaðbundin störf, eftir landshlutum.
Á heimasíðu Byggðastofnunar má finna lista yfir húnsæði fyrir óstaðbundin störf, eftir landshlutum.

Óstaðbundin störf: jákvæðni og styrkir til að fjölga störfum í landsbyggðunum

Markmið rannsóknarinnar „Ef þú vilt búa út á landi þá þarft þú að geta haft þetta val“ var að kanna reynslu fólks af óstaðbundnum störfum og hjá yfirmönnum þeirra, mannauðsstjórum eða forstöðufólki. Einnig að koma með ábendingar um hvernig megi bæta árangur með byggðaaðgerðinni „óstaðbundin störf“. 

Niðurstöður rannóknarskýrslunnar greina til dæmis frá því að almennt sé starfsfólk í óstaðbundnum störfum farsælt í starfi og upplifi jákvætt viðhorf gagnvart vinnufyrirkomulaginu. Samkvæmt niðurstöðum er einn helsti kosturinn sá að fólk geti unnið starf sem annars væri ekki í boði á svæðinu þar sem það býr og að með fyrirkomulaginu fjölgi atvinnutækifærum fyrir háskólamenntað fólk í landsbyggðunum. Óstaðbundin störf auðvelda fólki að skipta um starf án þess að flytja maka og fjölskyldu milli landshluta vegna starfs, en geta einnig auðveldað fólki sem vill flytja á nýjan stað að taka starfið með sér. Frá sjónarhorni mannauðsstjóra þá var helsti kostur óstaðbundinna starfa að geta valið hæfasta fólkið til starfa, óháð búsetu. Þá sé það kostur að geta boðið fólki upp á búsetufrelsi og það styðji við betri samræmingu vinnu- og fjölskyldulífs. 

Að mati mannauðsstjóra er kostnaður óstaðbundinna starfa stór áskorun fyrir stofnanir. Einnig geti það verið krefandi fyrir mannauðsstjóra að passa upp á vinnuheild og starfsanda í þessu umhverfi. Að mati fólks í óstaðbundnu starfi er fjarlægðin frá samstarfsfélögum og áhrif þess á samskipti einn helsti gallinn. Fram kemur að þarft sé á að kynna betur fyrirkomulag óstaðbundinna starfa fyrir mannauðsstjórum. Einnig að möguleikinn sé kynntur einstaklingum sem starfa fyrir ríkisstofnanir sem og allt regluverk í kringum þessi störf, vinnuverndarsjónarmið og réttindi.

Bent er á að víða sé mikill áhugi sé fyrir innleiðingu vinnuklasa þar sem boðið er upp á vinnurými í samfélagi við aðra í svipaðri stöðu. Það fyrirkomulag dragi úr félagslegri einangrun óstaðbundins starfsfólks og sé árangursríkara en að einstaklingar fái skrifborð hjá starfandi stofnunum í bæjarfélaginu.

Sjá nánar rannsóknarskýrsluna í heild sinni: „Ef þú vilt búa úti á landi þá þarft þú að geta haft þetta val.“

Umfjöllun um rannsóknina er einnig að finna á heimasíðu RHA, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri: Ráða ekki fleiri óstaðbundna án stuðnings frá ríkinu.

Opið er fyrir umsóknir um styrki til að fjölga óstaðbundnum opinberum störfum í landsbyggðunum, vísum við á  fyrri frétt SSNE til almennrar kynningar og eftirfarandi hlekki til að kanna málið betur:

Getum við bætt síðuna?