Fara í efni

Orkustofnun styrkir varmadælukaup

Orkustofnun styrkir varmadælukaup

Orkustofnun auglýsti á dögunum styrki til varmadælukaupa á eignum sem eru að notast við rafhitun eða olíukyndingu. 

Skilyrðin fyrir styrkveitingu eru að eignin verður að vera niðurgreiðslu á rafhitun eða olíukyndingu og eignin verður að hafa lögheimilisskráningu.

Hvernig virkar þetta?
Sótt er um í gegnum þjónustugátt á vef Orkustofnunar.
Styrkurinn er reiknaður út frá kaupum á búnaði og efniskostnaði við uppsetningu hans.
Stykurinn miðast við 50% af efniskostnaði.
Hámarksstyrkur er 1.337.000 kr.
Niðurgreiðslur skerðast ekki við styrkveitinguna og haldast áfram í samræmi við notkun (að hámarki 40.000 kwh/ári).
Styrkurinn er til 15 ára á viðkomandi fasteign að þeim tíma liðnum er hægt að sækja um styrk á sömu fasteign.

Hvað er styrkhæfur kostnaður?
1. Varmadæla
2. Festingar og allur aukabúnaður með varmadælu
3. Efniskostnaður frá rafvirkja
4. Efniskostnaður pípara
5. Flutningskostnaður varmadælunnar

Ath: Svo er þetta líka skattfrjálst og hægt að fá vsk. endurgreiddan hjá skattinum.

Meiri upplýsingar má finnar hér

Getum við bætt síðuna?