Opnir súpufundir á Tröllaskaga um starfsemi SSNE
Opnir súpufundir á Tröllaskaga um starfsemi SSNE
Anna Lind og Hildur verkefnastjórar atvinnuþróunar, menningar og nýsköpunar hjá SSNE standa fyrir opnum kynningarfundum á starfsemi samtakanna, hvað er á döfinni og opnu kaffispjalli í framhaldinu.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að kynna sér starfssemina að mæta.
Þær verða til skrafs og ráðagerðar:
Þriðjudaginn 22. mars kl. 11:30 til 13:00 í Menningarhúsinu Bergi, Dalvík
Miðvikudaginn 23. mars kl. 11:30 til 13:00 í Ráðhúsinu á Siglufirði, 2. hæð.
Fundurinn er öllum opinn en vinsamlegast skráið ykkur hér eða sendið tölvupóst á Hildi eða Önnu Lind.
Verkefnastjórar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra