Opið fyrir umsóknir í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins um þróunarsamvinnu
Opið fyrir umsóknir í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins um þróunarsamvinnu
Utanríkisráðuneytið vekur athygli á því að nú er hægt að sækja um í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífs (áður Samstarfssjóður atvinnulífs um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna).
Hefur þitt fyrirtæki áhuga á að vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og ráðast í samstarfsverkefni í þróunarlöndum? Með því að styðja við eflingu atvinnu- og viðskiptalífs í þessum löndum gefst um leið tækifæri til að efla samkeppnishæfni á framtíðarmörkuðum.Auglýst er eftir umsóknum til og með 3. febrúar 2022
Nánari leiðbeiningar í verklagsreglum sjóðsins
Fyrirtæki
Fyrirtæki sem eru opinberlega skráð sem slík og eru ekki ríkisaðilar geta sótt til sjóðsins. Sérstaklega er hvatt til þess að verkefni stuðli að þverlægum markmiðum íslenskrar þróunarsamvinnu sem lúta að jafnrétti kynjanna og að jákvæðum umhverfis- og loftslagsáhrifum. Fyrirtæki geta tekið höndum saman með félagasamtökum, háskólum og slíkum aðilum við framkvæmd verkefna.
Samstarfslönd
Áherslan er á lágtekju- og lágmillitekjuríki á lista Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (DAC/OECD) um viðtökulönd opinberrar þróunaraðstoðar, auk smáeyþróunarríkja (SIDS). Verkefni þarf að vinna í samvinnu við traustan samstarfsaðila í þróunarlandi. Sjá lista yfir gjaldgeng samstarfslönd.
Styrkfjárhæð
Styrkfjárhæð getur numið allt að 200.000 evra yfir allt að þriggja ára tímabil. Styrkur getur numið allt að 50% af heildarkostnaði verkefnis og þarf því fyrirtæki og samstarfsaðilar þess að leggja fram sömu eða hærri fjárhæð og styrkfjárhæðin nemur.
Umsókn
Senda skal umsókn til utanríkisráðuneytisins í gegnum miðlæga þjónustugátt hins opinbera, island.is/atvinnulífssjodur þar sem nota skal rafræna auðkenningu. Nota skal hjálögð umsóknareyðublöð, verkefnaskjal og verk- og kostnaðaráætlun. Nánari upplýsingar eru í verklagsreglum auk þess sem senda má fyrirspurnir á netfangið atvinnulifssjodur@utn.is.
Afgreiðsla
Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti matshóps þriggja óháðra sérfræðinga á sviði fyrirtækjareksturs og þróunarsamvinnu. Umsóknir þurfa að berast í gegnum miðlæga þjónustugátt hins opinbera: island.is/atvinnulífssjodur eigi síðar en 3. febrúar 2022. Næst verður auglýst í mars með frest til 3. maí og svo í ágúst með frest til 3. október.
Nánari upplýsingar í hjálagðri auglýsingu og á heimasíðu ráðuneytisins.