Námskeið um aukið virði hliðarafurða matvælaframleiðslu
Námskeið um aukið virði hliðarafurða matvælaframleiðslu
Markmið námskeiðsins eru meðal annars:
- Að auka meðvitund um samfélagslega og umhverfislega ábyrgð matvælaframleiðenda og um þau tækifæri sem eru til staðar til að bæta nýtingu hliðarafurða í matvælaframleiðslu.
- Að byggja upp vettvang þar sem nemendur og ungt fagfólk með fjölbreyttan bakgrunn getur skipst á hugmyndum og tekist á við þau tækifæri og áskoranir sem eru fyrir hendi þegar kemur að virðisaukningu hliðarafurða í matvælaframleiðslu.
- Að stuðla að heildarhugmyndavinnu (e. concept work) og vöruþróun.
- Að efla tengslanet ungra frumkvöðla, stækka það og styrkja.
Námskeiðið verður kennt á ensku og er nemendum að kostnaðarlausu. Skráningarfrestur rennur út 30. september.
Frekari upplýsingar má nálgast hér.