Menningarauðlind ferðaþjónustunnar
Menningarauðlind ferðaþjónustunnar
Spennandi dagskrá fer fram í Hofi á Akureyri 14. maí og hvetjum við öll sem hafa áhuga á eflingu atvinnugreina innan ferðaþjónustu og menningar til skráningar.
Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning nauðsynleg, vinsamlegast skráið ykkur fyrir 5. maí til að tryggja gott skipulag: Smelltu HÉR til að skrá þig.
Rannsóknasetur skapandi greina stendur að ráðstefnunni í samstarfi við fjölda aðila úr menningargeiranum og ferðaþjónustunni. Ráðstefnustjóri er Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri
Dagskrá
09:00 Ávarp - fulltrúi menningarmálaráðherra
09:10 Menningarferðaþjónusta í ferðamálastefnu - Svanhildur Konráðsdóttir, formaður starfshóps um menningarferðaþjónustu í mótun ferðamálastefnu og forstjóri Hörpu
09:20 Dæmisögur af menningarferðaþjónustu:
- Landnámssetrið í Borgarnesi - Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður Landnámssetursins
- Galdrasýning á Ströndum - Jón Jónsson, þjóðfræðingur
- 1238 Baráttan um Ísland - Freyja Rut Emilsdóttir, framkvæmdastjóri
- Bræðslan: Geta viðburðir styrkt brothættar byggðir? - Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum
- Þórbergssetur - Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs
- Lava Show - Ragnhildur Ágústsdóttir LadyLava, stofnandi LavaShow
10:30 Kaffihlé
10:45 Áfangastaðir - sögur, söfn og frumkvöðlastarf
Rannsóknir og þróunarverkefni:
- Vistkerfi menningararfs og ferðaþjónustu: Frásagnir og skapandi ferli til eflingar samfélaga og byggða -Katrín Anna Lund, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands
- Sameiginleg hagsmunamál safna og ferðaþjónustu á Íslandi -Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði
- Óáþreifanlegur menningararfur: Þróun og sjálfbærni -Ingibjörg Benediktsdóttir, verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga
- Túrismi, trauma og tækni til miðlunar -Sigurjón Hafsteinsson, prófessor við Háskóla Íslands
11:45 Stuttar umræður
12:00 Hádegisverður
13:00 Hópavinna
- Samstarf og klasahugsun
- Markaðs- og kynningarmál
- Vöruþróun og fjárfestingar
- Gagnasöfn og rannsóknaáætlun
14:30 Kaffihlé
14:50 Kynningar og umræður á hópastarfi
15:50 Lokaorð - fulltrúi atvinnuvegaráðherra
16:00 Ráðstefnu slitið
Vinsamlegast skráið mætingu ýmist á staðinn eða í streymi fyrir kl. 12:00 mánudaginn 5. maí - Hlökkum til að sjá ykkur!
Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) stendur að ráðstefnunni Menningarauðlind ferðaþjónustunnar, ráðstefnu um menningarferðaþjónustu og nýja ferðamálastefnu til 2030 þann 14. maí í Hofi, Akureyri. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) og hlaut verkefnið styrk úr Hvata, sjóði menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Einnig koma að ráðstefnunni fjöldi aðila úr menningargeiranum og ferðaþjónustunni.
Markmiðið með ráðstefnunni er að skoða samspil og hlutverk menningar í ferðaþjónustu. Enn fremur er ráðstefnunni ætlað að skoða hvernig efla má gagnasöfn og rannsóknavirkni sem stuðlað getur að þróun og framförum á sviði menningarferðaþjónustu.
Á ráðstefnunni gefst gestum kostur á að heyra margvíslegar dæmisögur um vel heppnaða menningarferðaþjónustu og fræðileg erindi um rannsóknir á þessu sviði. Allir þátttakendur geta tekið þátt í hópavinnu um fjögur þemu sem verður nýtt í að þróa rannsóknastefnu RSG á sviði menningarferðaþjónustu. Þemun eru: Samstarf og klasahugsun, Markaðs- og kynningarmál, Vöruþróun og fjárfestingar, Gagnasöfn og rannsóknaáætlun.
Viðburðinum verður streymt en gert verður hlé á streyminu meðan á hópavinnu stendur.