Lóan er komin!
Lóan er komin!
Umsóknarfrestur fyrir árið 2025 er til og með 30. mars 2025.
Hlutverk styrkjanna:
- Auka við nýsköpun á landsbyggðinni og styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum.
- Styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni.
- Stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðla starf á forsendum svæðanna.
Um styrkina:
- Styrkjunum er úthlutað til nýsköpunarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins.
- Styrkjum er úthlutað til árs í senn, hvert verkefni getur hlotið að hámarki 20% af heildarúthlutun hvers árs.
- Mótframlag frá umsækjanda þarf að lágmarki að vera 30%.
- Matshópur metur umsóknir í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda.
- Umsóknir berist rafrænt á minarsidur.hvin.is.
Lóu nýsköpunarstyrkir eru ætlaðir verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi.
Við mat á nýnæmi verkefna er stuðst við skilgreiningu OECD um nýsköpun. Nýsköpun er skilgreind sem innleiðing nýrrar eða mjög endurbættrar vöru, þjónustu eða ferils, nýrrar aðferðar til markaðssetningar eða nýrrar skipulagsaðferðar í viðskiptaháttum, skipulagi á vinnustað eða ytri samskiptum.