Fara í efni

Listasumar á Akureyri - styrkir til verkefna

Listasumar á Akureyri - styrkir til verkefna

Listasumar á Akureyri 2022 verður sett 11. júní og lýkur 23. júlí. Ævintýrin gerast á Listasumri með fjölbreyttum uppákomum og upplifunum þar sem gestir og bæjarbúar njóta viðburða saman. Einnig er fjöldi listasmiðja í boði fyrir börn og fullorðna sem tilvalið er að prófa.

Verkefnastjórn Listasumars er í höndum Almars Alfreðssonar. Hægt að senda honum línu í netfangið listasumar@akureyri.is

*English version HERE

Styrkir Listasumars 2022

Akureyrarbær leitar að áhugaverðum, skemmtilegum og öðruvísi hugmyndum að listasmiðjum og viðburðum fyrir hátíðina. Í boði eru fimm verkefnastyrkir á fyrirfram ákveðnum dögum og stöðum. Einnig eru þrír styrkir fyrir 2ja daga og þrír styrkir fyrir 3ja daga listasmiðjur fyrir börn og fullorðna.

Verkefnastyrkir

Laugardagurinn 18. júní Deiglan, Listagilið
Styrkur að upphæð 120.000 kr. eingreiðsla, aðgangur að Deiglunni degi áður og degi eftir, merktur viðburður í kynningarefni Listasumars og Gilfélagsins, aðgangur að stórum sal, fínni áhorfendaaðstöðu, einföldu hljóðkerfi, skjávarpa, borðum og stólum, aðgangur að uppsetningarbúnaði Deiglunnar. Einnig er hægt að fá aðgang að aðstoð starfsmanns gegn hóflegu gjaldi.

Laugardagurinn 25. júní Minjasafnið á Akureyri eða Davíðshús
Minjasafnið: Styrkur að upphæð 120.000 kr. eingreiðsla, aðgangur að sviði og áhorfendaaðstöðu í sýningunni Tónlistarbærinn Akureyri, æfing fyrir viðburð daginn áður eða fyrr, merktur viðburður í kynningarefni Listasumars og Minjasafnsins, starfsfólk Minjasafnsins verður til aðstoðar. Aðgangur að einföldu hljóðkerfi.
Davíðshús: Styrkur að upphæð 120.000 kr. eingreiðsla, aðgangur að flygli hússins, lítil en notaleg áhorfendaaðstaða. Tilvalinn vettvangur fyrir bókmenntaviðburð og klassíska tónleika. Æfing fyrir viðburð daginn áður eða fyrr, merktur viðburður í kynningarefni Listasumars og Minjasafnsins, starfsfólk Davíðshúss verður til aðstoðar. Aðgangur að einföldu hljóðkerfi.

Laugardagurinn 2. júlí Menningarhúsið Hof
Styrkur að upphæð 120.000 kr. eingreiðsla, aðgangur að Hömrum með einföldu hljóðkerfi á viðburðadegi, merktur viðburður í kynningarefni Listasumars og Menningarfélags Akureyrar, aðgangur að borðum og stólum. Miðasala fer í gegnum mak.is. Hægt er að fá aðgang að starfsfólki og tækjabúnaði gegn gjaldi. Nánari upplýsingar um hvað er innifalið í Hömrum má finna á mak.is

Helgin 8.-10. júlí Deiglan, Listagilið
Styrkur að upphæð 150.000 kr. eingreiðsla, aðgangur að Deiglunni degi áður og degi eftir, merktur viðburður í kynningarefni Listasumars og Gilfélagsins, aðgangur að stórum sal, fínni áhorfendaaðstöðu, einföldu hljóðkerfi, skjávarpa, borðum og stólum, aðgangur að uppsetningarbúnaði Deiglunnar. Einnig er hægt að fá aðgang að aðstoð starfsmanns gegn hóflegu gjaldi.

Laugardagurinn 16. júlí Listasafnið á Akureyri
Styrkur að upphæð 120.000 kr. eingreiðsla, aðgangur að rými í Listasafninu degi áður og degi eftir, merktur viðburður í kynningarefni Listasumars og á listak.is, aðgangur að einföldu hljóðkerfi, skjávarpa, borðum og stólum. Einnig er hægt að fá aðgang að aðstoð starfsmanns gegn hóflegu gjaldi.

Listasmiðjur

Þrjár 2ja daga og þrjár 3ja daga listasmiðjur í húsnæði Rósenborgar í júní og júlí
Styrkur að upphæð 80.000 kr. (2ja) eða 120.000 kr. (3ja) eingreiðsla, bókaður viðburður í Rósenborg, merktur viðburður í kynningarefni Listasumars og Rósenborgar, aðgangur að tækjabúnaði, borðum og stólum. Einnig er hægt að fá aðgang að aðstoð starfsmanns gegn hóflegu gjaldi.

Umsóknareyðublöð fyrir verkefna- og listasmiðjustyrki er að finna undir umsóknir á þjónustugátt Akureyrarbæjar HÉR
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar.

Þátttaka í dagskrá Listasumars 2022

Þeir sem hafa áhuga á að halda viðburði undir merkjum Listasumars geta sent verkefnastjóra þátttökuumsókn.
Þátttökuumsókn má finna HÉR
Umsóknarfrestur er til og með 8. maí.

Getum við bætt síðuna?