Fara í efni

Lærissneið - Múrarnir rofnir

Lærissneið - Múrarnir rofnir

Eitt af áhersluverkefnum SSNE 2022 er Lærisneið, þar sem þróa á frekar valgreinar þvert á fámenna skóla. Á síðasta skólaári fékk Ásgarður veglegan styrk frá SSNE til þess að þróa kennslu í Skóla í skýjunum sem nýttist meðal annars í að útbúa miðlægt tvær valgreinar, önnur var tölvuleikjahönnun með Unity og hin var bókagerð. Nemendur úr níu skólum í þremur hópum komu saman á netinu yfir heila önn. Tilraunin heppnaðist vel og saman lærðum við, skólastjórnendur og kennarar mjög margt um nauðsynlegan aðbúnað og stuðning til þess að betur mætti fara næst.

Í samráði við skólastjórnendur nú í fjórtán skólum var ákveðið að gefa nemendum kost á að koma með tillögur að valgreinum og taka þátt í forvalskönnun þar sem við þrengdum hugmyndir þeirra úr 40 valgreinahugmyndum og niður í nítján. Nú hafa allir 160 nemendurnir valið og að öllum líkindum munum við geta boðið upp á allt að fjórtán valgreinarnar þar sem 95% af nemendum fá sitt fyrsta val. Við erum í skýjunum! Kökuskreytingar, íþróttaval, eðlis- og efnafræðival, kvikmyndagerð, franska, þýska, hljóðblöndun, kynjafræði, rafíþróttir, tölvuleikjahönnun og leiklist - svo eitthvað sé nefnt. Nemendur blandast greinilega inn í hópana og sem dæmi má nefna að krakkar úr fjórum ólíkum skólum velja sér eðlis- og efnafræði, eitthvað sem mjög erfitt hefði verið að sinna inni í hverjum skóla fyrir sig og er erfitt að sinna í fjölmennari skólum líka.

Starfsfólk Ásgarðs og Skóla í skýjunum munu í sumar sjá um að setja námskeiðin upp í Valgreinaskólanum á Námsgagnatorginu. Kennarar koma úr þátttökuskólunum og eru ráðnir utan að ef að ekki næst að manna innan skólanna. Greiðslur og framlög skólanna fara í samlagspott sem verið er að móta.

„Ég þori að fullyrða að allir sem hafa komið að verkefninu hingað til eru að springa úr spenningi. Hér erum við í sameiningu að vinna að mjög mikilvægum byggðaverkefnum sem eru í raun svo mikilvæg að við efumst ekki um að áhrifin verða veruleg. Ef nemendur í fámennum skólum geta fengið reglubundin aðgang að valgreinum við hæfi og sérhæfðri ráðgjöf og þjónustu í gegnum netið - þá erum við að auka fjölbreytni, efla tengslanet nemenda, nýta sérþekkingu kennara þvert á sveitarfélög, auka stærðarhagkvæmni, styrkja og efla gæðastarf í grunnskólum og rjúfa félagslega einangrun“. Kristrún Lind Birgisdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Ásgarðs

Samstarfsaðilar verkefnisins eru: Hríseyjarskóli, Stórutjarnaskóli, Þingeyjarskóli, Reykjahlíðarskóli, Öxarfjarðarskóli, Grunnskóli Raufarhafnar, Skóli í skýjunum og Þórshafnarskóli. Að auki hafa eftirfarandi skólum boðið að vera með: Reykhólaskóli, Patreksskóli, Bíldudalsskóli, Tálknafjarðarskóli, Grunnskóli Bolungarvíkur og Grunnskóli Strandabyggðar.

Getum við bætt síðuna?