Fara í efni

Hönnun - Nýsköpun - Tónlist

Hátíð hönnunar og nýsköpunar. Áherslan í ár er á tónlist og margvíslegar birtingarmyndir snertiflata…
Hátíð hönnunar og nýsköpunar. Áherslan í ár er á tónlist og margvíslegar birtingarmyndir snertiflata hönnunar og tónlistar.

Hönnun - Nýsköpun - Tónlist

HönnunarÞing er hátíð hönnunar og nýsköpunar. Áherslan ársins er á tónlist og margvíslegar birtingarmyndir snertiflata hönnunar, tónlistar og nýsköpunar. Hátíðin er haldin að frumkvæði Hraðsins, miðstöðvar nýsköpunar á Húsavík og fer fram 4. og 5. október.

Í gegnum tóna og tal dagskrárinnar kynnast gestir því hvernig spila má á strengi nýsköpunar, þjálfa sköpunarvöðvann og sjá/heyra hugmyndir verða að veruleika. 
Á dagskránni eru meðal annars bátahönnuður, fjárfestir og stjórnarmanneskja frá Bang & Olufsen, tölvuleikjahönnuður, hugarheimur Skálmaldar, leyndarmál, geimskip, ný íslensk hljóðtækni, frumkvöðlar, forritari, dreki, sjóböð og stórkostlegt tónlistarfólk með uppákomur. Fjölbreyttir þræðir skapandi huga sem búið er að spinna saman í vef HönnunarÞings 2024 á Húsavík.
 
Nánari upplýsingar um viðburði, hönnuði, tónlistarfólk og dagskrána í heild sinni má finna inn á https://www.hradid.is/designthing
Hér má finna facebook viðburð Hönnunarþings // Design Thing 2024

Flestir viðburðir HönnunarÞings fara fram á Stéttinni og tekur SSNE þátt í undirbúningi hátíðarinnar til stuðnings atvinnulífs á sviði nýsköpunar og skapandi greina. 


 

Þingið var haldið í fyrsta sinn í fyrra með glæsilegri dagskrá. Þá var áherslan á vöruhönnun en í ár er hún á tónlist. Með því að smella hér má kynna sér þátttakendur og stemningu ársins 2023.

---

Design Thing is a festival of design and innovation. The festival is held in Húsavík, Iceland, at the beginning of October. This year's focus is on music and the various intersections of design and music. There will be exhibitions, lectures, concerts, workshops, and various other events from October 4-5, 2024. The program will include, among others, a board member from Bang & Olufsen, a professor from the Iceland University of the Arts, rockers from Skálmöld metal band, and nationally renowned musicians.

Join us for eventful and creative Autumn-days in the beautiful town of Húsavík.

Getum við bætt síðuna?