Fara í efni

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra

Mynd fengin að láni af hrisey.is frá frábærri hinsegin hátíð
Mynd fengin að láni af hrisey.is frá frábærri hinsegin hátíð

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra

Öll sveitarfélögin á starfsvæði SSNE undirbúa nú hinsegin hátíð dagana 18.-21. júní 2025. Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.

Sveitarfélögin vinna saman að undirbúningi hátíðarinnar, sem er hugsuð þannig að viðburðir fari fram á öllu svæðinu. Fyrsti formlegi samstarfsfundurinn var í gær.

Við hvetjum ykkur til að taka dagana strax frá til að gleðjast með ykkar fólki!

Ef þið viljið koma á framfæri hugmyndum, getið þið haft samband við Elísabet Ögn verkefnastjóra atvinnu- og menningarmála hjá Akureyrarbæ en hún er tengiliður undirbúningshópsins, elisabetogn(hjá)akureyri.is

Verkefnið Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra. Yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk árið 2025 má finna hér.

Getum við bætt síðuna?