Hátindur 60+ Leiðandi verkefni fyrir velferðarlausnir í dreifbýli
Hátindur 60+ Leiðandi verkefni fyrir velferðarlausnir í dreifbýli
Það er gaman að segja frá því sem vel gengur. Hátindur 60+ er dæmi um verkefni sem hlaut styrk úr stefnumótandi byggðaáætlun (C1) frá Byggðastofnun og hefur verið gaman að fylgjast með. Verkefnið snýr að nýsköpun í velferðarþjónustu fyrir 60 ára og eldri í Fjallabyggð og er í samræmi við aðgerðaráætlanir fyrri og núverandi ríkisstjórnar varðandi innleiðingu velferðartækni og þróun þjónustubreytinga í þágu notenda.
Hátindur 60+
Hátindur 60+ er nýsköpunar- og þróunarverkefni í velferðarþjónustu fyrir íbúa Fjallabyggðar, 60 ára og eldri. Verkefnið er samstarfsverkefni Fjallabyggðar, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN), Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Heilbrigðis- og velferðartækniklasa Íslands (Veltek). Með samstarfsyfirlýsingu staðfestu þessir aðilar vilja sinn til að þróa og innleiða tæknilausnir í heilbrigðis- og velferðarþjónustu fyrir eldri íbúa sveitarfélagsins. Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið komu að verkefninu með ráðgjöf, hvatningu og fjárhagslegum stuðningi. Hátindur 60+ er brautryðjendaverkefni sem miðar að því að bæta lífsgæði eldri borgara í Fjallabyggð með nýsköpun í velferðarþjónustu.
Nýsköpun í velferðarþjónustu
Hátindur 60+ hefur leitt til nýrrar nálgunar í þjónustu við eldra fólk. Verkefnið sameinar stefnu stjórnvalda um nýsköpun í velferðarþjónustu, tæknilausnum og alþjóðlegum samstarfsverkefnum til að tryggja sjálfbæra og skilvirka þjónustu í dreifðum byggðum. Fjallabyggð hefur undanfarin þrjú ár unnið markvisst að því að innleiða slíkar lausnir til hagsbóta fyrir íbúa.
Eitt af lykilverkefnum Hátinds 60+ voru skjáheimsóknir sem hófust 12. janúar 2024 og mörkuðu tímamót í velferðarþjónustu sveitarfélagsins. Með þessari nýju þjónustu er:
✔ Aukið aðgengi að þjónustu fyrir eldri íbúa á svæðinu.
✔ Stutt við sjálfstæði einstaklinga, eflt öryggi og dregið úr einangrun.
✔ Minnkuð þjónustubyrði og bætt nýting mannauðs í velferðarkerfinu.
Núverandi skjólstæðingar hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að viðhalda þjónustunni, enda veitir hún þeim aukna öryggiskennd með reglulegu skjáinnliti og athugunum á velferð þeirra. Þó að skjáheimsóknirnar falli ekki formlega undir fjarheilbrigðisþjónustu að svo stöddu, hafa þær sýnt að þær bæta þjónustu við íbúa, létta á álagi starfsfólks og eru mikilvægur liður í þróun nútímalegrar velferðarþjónustu.
Tæknilausnir og sveigjanleiki í þjónustu
Til viðbótar við skjáheimsóknir hefur Fjallabyggð innleitt nýjar skipulagslausnir í þjónustukerfi sveitarfélagsins. Þar má nefna: Neyðarhnappa með símkorti, talsambandi í báðar áttir, fallskynjara og staðsetningarmöguleikum. Þeir veita aukið öryggi og hugarró fyrir skjólstæðinga og aðstandendur. Sveigjanleg skipulagning þjónustu, sem gerir notendum kleift að aðlaga þjónustutíma að þörfum sínum. Samstarfsverkefni um fallskynjara, þar sem prófanir hafa farið fram á heimilum eldra fólks, í þjónustuíbúðum aldraðra, hjúkrunarheimilinu Hornbrekku og á sjálfstæðri búsetu.
Framtíðarsýn – sjálfbær velferðarþjónusta fyrir dreifbýli
Með þeim árangri sem Hátindur 60+ hefur þegar sýnt fram á er ljóst að verkefnið hefur lagt traustan grunn að nýsköpun í velferðarþjónustu í dreifbýli. Samstarfið milli stofnana, sveitarfélags og samfélags hefur leitt til lausna sem ekki aðeins bæta lífsgæði heldur einnig stuðla að sjálfbærari og skilvirkari þjónustu. Framtíðarsýn verkefnisins felur í sér áframhaldandi þróun og innleiðingu nýrra lausna sem mæta síbreytilegum þörfum eldra fólks. Fjallabyggð hefur sýnt að með framsýni og samvinnu er hægt að skapa umhverfi þar sem öldruðum er gert kleift að lifa með auknu öryggi, sjálfstæði og virðingu. Með þessari vegferð hefur verið brotið blað í velferðarþjónustu í Fjallabyggð – og það er aðeins upphafið.