Fyrstu samningar um óstaðbundin störf undirritaðir
Fyrstu samningar um óstaðbundin störf undirritaðir
Fyrstu samningarnir um óstaðbundin störf á landsbyggðinni hafa verið undirritaðir á Húsavík í vikunni. Annars vegar er um ræða starf sem staðsett verður í húsnæði Sýslumannsins á Húsavík og hins vegar starf sem staðsett verður í vinnustaðaklasanum Útibúinu á Hvammstanga.
Samningarnir eru gerðir á grundvelli byggðaáætlunar, aðgerðar B.7 um óstaðbundin störf. Markmið aðgerðarinnar er að efla búsetufrelsi með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Aðgerðin felur í sér að ríkisstofnanir sem hafa aðsetur á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um styrki vegna nýrra starfa utan svæðisins eða starfa sem verða færð frá höfuðborgarsvæðinu frá 1. nóvember 2024. Styrkjum er ætlað að koma til móts við ferðakostnað og leigu á aðstöðu í vinnustaðaklösum. Veita má styrk til stofnunar vegna starfs til allt að þriggja ára. Hámarksstuðningur við hvert starf getur numið tveimur milljónum króna á ári.
Nánair upplýsingar um styrkina má finna hér.