Fara í efni

Fyrsti tónlistarskólinn á Íslandi til að ná Grænu skrefi

Helga Kvam aðstoðarskólastjóri tók við viðurkenningu frá Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur verkefnastjóra…
Helga Kvam aðstoðarskólastjóri tók við viðurkenningu frá Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur verkefnastjóra SSNE.

Fyrsti tónlistarskólinn á Íslandi til að ná Grænu skrefi

Grænum skrefum SSNE fjölgar áfram og í dag tók Tónlistarskóli Eyjafjarðar við viðurkenningu fyrir bæði fyrsta og annað skrefið.

Þónokkuð er síðan þau kláruðu þá vinnu en afhending viðurkenningarinnar hefur tafist. Tónlistarskólinn hefur engu að síður haldið ótrauður áfram og eru þau langt komin með að ná þriðja skrefinu.

Tónlistarskóli Eyjafjarðar hefur drífandi í allri sinni umhverfisvinnu. Skólinn hefur sett meðal annars sett sé umhverfisstefnu og flokka nú allt sorp með samræmdu flokkunarkerfi. Lífrænt kaffi er nú í boði á kaffistofunni og aðstaðan til fyrirmyndar.

Tónlistarskóli Eyjarfjarðar hefur náð þeim einstaka áfanga að vera fyrsti tónlistarskólinn á Íslandi til þess að fara í Græn skref og mega þau vera stolt af því.

Verkefnastjórar SSNE þakka fyrir góðar móttökur og óska Tónlistarskólanum innilega til hamingju með fyrsta og annað skrefið og óska þeim velfarnaðar í áframhaldandi innleiðingu grænna skrefa.

Getum við bætt síðuna?