Fyrsta rafræna listasmiðja listasafnsins komin í loftið
Fyrsta rafræna listasmiðja listasafnsins komin í loftið
Fyrsta rafræna listsmiðja Listasafnsins er komin í loftið á heimasíðu listasafnsins og á samfélagsmiðlum.
Verkefnið felst í að bjóða fjölskyldum að taka þátt í rafrænni listsmiðju á vegum Listasafnsins. Í samvinnu við sína nánustu fá börn tækifæri til að skapa sitt eigið listaverk óháð stað og stund. Lögð er áhersla á að þátttakendur fái að sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem sett verður upp í Listasafninu. Frábært tilefni fyrir fjölskyldur að njóta samveru og skapa utan línulegrar dagskrár. Umsjón með fyrstu smiðjunni hefur Sigrún Björg Aradóttir, grafískur hönnuður.

- Fjölskyldan horfir saman á listsmiðjuna.
- Í sameiningu vinnur fjölskyldan sína eigin útgáfu af verkinu á þeim tíma sem hentar best.
- Þegar verkið er tilbúið má koma með það í móttöku Listasafnsins á Akureyri. Opið er alla daga kl. 12 til 17.
- Skila þarf verkum fyrir 13. október 2021 og passa að þau séu merkt.
- Laugardaginn 16. október 2021 verður opnuð sýning á verkunum í safnfræðslurými safnsins.
- Allir sem skila inn listaverki fá glaðning.
- Sýningu lýkur 14. nóvember 2021 og þá fá börnin verkin sín til baka.
Ef spurningar vakna má hafa samband við Heiðu Björk Vilhjálmsdóttur fræðslufulltrúa heida@listak.is.
Verkefnið er styrkt af SSNE.
Rafræna listsmiðja Listasafnsins
Listak.is